framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar þá að spyrja í framhaldi af því um þessa þrjá aðila sem á að skipa þarna: Hvernig verður með hæfi? Við þurfum auðvitað að passa upp á að þeir sem taka þetta verkefni að sér, einhvern veginn finnst mér við hafa ætt af stað, en hvernig á að tryggja að þetta fólk sem á að sjá um þessa hluti sé hæft til þess og það sé algjörlega séð til þess að það viti nákvæmlega hvað það er að gera? Ef við tökum Þórkötlumálið og uppkaupin þá hefur mér verið bent á að fólk virðist ekki vita neitt nákvæmlega og það nær ekki sambandi. Jú, það er búið að segja við það: Húsnæðið ykkar verður keypt, en engir peningar koma. Það er eins og það séu alltaf einhverjir þröskuldar fyrir og ég spyr mig hvort það sé vegna þess að það er ekki nógu hæft fólk sem er þarna að verki og hvernig eigi þá að tryggja það að í þessu tilfelli verði valið hæft fólk.