framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég geri mér grein fyrir því að hér vakna auðvitað mjög margar spurningar og ég vonast til að nefndin fái ráðrúm til að vinna úr þeim spurningum og lýsi ráðuneyti mitt tilbúið til þess að koma á fund nefndarinnar og ræða einstök mál. En mig langar að staldra aðallega við það sem hv. þingmaður nefnir og hefur áhyggjur af varðandi fullnaðarafgreiðslu mála. Þá er mikilvægt að halda því til haga að framkvæmdanefndin verður stjórnvald. Það er hugsunin. En um leið er hún fjölskipað stjórnvald þannig að hún getur eingöngu tekið stjórnvaldsákvarðanir í sameiningu rétt eins og sveitarstjórn eða bæjarstjórn. Þannig að við erum ekki að horfa upp á það að einstaklingar innan framkvæmdanefndar geti tekið ákvarðanir.
Varðandi áhyggjur hv. þingmanns af persónuupplýsingum þá þarf nefndin að skoða það ítarlega og ég tek undir mikilvægi þess. Þar munu gilda þær reglur sem eiga við um meðferð persónuupplýsinga eftir málefnasviðum, til að mynda persónuverndarákvæði grunnskólalaga o.s.frv., þannig að það er eitthvað sem ætti að vera með þeim hætti.