þjónusta við ungmenni sem eru ekki í vinnu, virkni eða námi.
Virðulegi forseti. Nú langar mig að ræða við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra um þjónustu við ungmenni sem ekki eru í námi, vinnu eða virkni, með áherslu á hlutverk framhaldsskólanna. Flest ungt fólk er í skóla og vinnur hluta úr ári, auk þess að sinna fjölbreyttu tómstundastarfi. Alltaf eru þó einstaklingar sem einhverra hluta vegna eru ekki virkir og oft er vísað til þess hóps sem NEET-hópsins eða NEET; ungt fólk yfir 16 ára sem er hvorki í námi, vinnu eða virkni. Fyrir því geta verið margvíslegar ástæður líkt og áföll, langtíma- eða skammtímaveikindi, taugaraskanir, námserfiðleikar, flutningur milli samfélaga eða eitthvað allt annað. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið í heild að sinna þessum einstaklingum vel með því að bjóða upp á ólíkar leiðir fyrir þessi ungmenni til að finna fjölina sína. Það er mikilvægt að það sé gert á forsendum hvers og eins einstaklings. Allir þessir einstaklingar hafa sína einstöku sögu og þurfa að fá viðbótartækifæri til þess að ná að vera virkir í samfélaginu.
Þessi hópur hefur sem betur fer ekki verið stór hér á landi í samanburði við önnur lönd en við verðum samt stöðugt að vera á vaktinni til að fyrirbyggja að hann vaxi, eins og því miður hefur gerst sums staðar í löndunum í kringum okkur. Skólakerfið er auðvitað í lykilhlutverki í forvörnum og uppbyggingu seiglu. Mörgum framhaldsskólum hefur tekist vel í vinnu gegn brottfalli og náð að finna fjölbreyttar leiðir til virkni fyrir fólk sem á erfitt með að fóta sig í skóla og oft þarf að finna aðrar leiðir en nám, eins og tækifæri til að spreyta sig í vinnu, einhvers konar endurhæfingu eða aðgang að ákveðinni heilbrigðisþjónustu. Þá skiptir samstarf og samvinna í samfélaginu miklu máli, samstarf skólanna við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki.
Ég hef verið að velta fyrir mér í vetur hver hafi eða ætti að hafa yfirsýn og forystu í þessu verkefni og spyr í því samhengi: Hversu mörg ungmenni á aldrinum 16–18 ára stunda ekki nám? Hverjar eru skyldur framhaldsskóla við ungmenni á aldrinum 16–18 ára sem þrífast ekki í skólanum og gætu fallið undir þessa NEET-skilgreiningu? Hvaða þjónusta miðast sérstaklega að þessum hópi og er í boði á vegum stofnana ráðuneytisins eða aðila sem ráðuneytið á í samstarfi við? Og telur ráðherra þörf á breytingum á þjónustu við þennan hóp?