Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Áskoranir íþróttafólks eru mér hugleiknar. Nýverið kynnti starfshópur mennta- og barnamálaráðuneytisins skýrslu um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Tillögur hópsins eru byggðar á breiðri og þverfaglegri nálgun og telur starfshópurinn að þær breytingar sem lagðar eru til muni hafa umtalsvert forvarnagildi, efla almenna heilsu, farsæld og lýðheilsu á Íslandi til lengri tíma litið og samhliða draga úr útgjöldum heilbrigðiskerfisins. Mat starfshópsins er að skapa þurfi breiða samstöðu og aðkomu að verkefninu til framtíðar svo að unnt sé að ná framúrskarandi árangri á alþjóðlegum vettvangi íþrótta. Fjölmargar tillögur eru settar fram í skýrslu hópsins, m.a. að afreksmiðstöð Íslands verði stofnuð, settur verði á laggirnar launasjóður afreksíþróttafólks og komið verði til móts við kostnaðarþátttöku íþróttafólks í landsliðsverkefnum.
En hvers vegna er þetta mikilvægt? Íþróttir sameina okkur og öll höfum við upplifað augnablik, ýmist í sigri eða ósigri, sem eru okkur minnisstæð. Við gleymum stað og stund og sameinumst í augnablikinu. Afreksíþróttafólk er fyrirmyndir í samfélaginu. Það veitir börnum og ungmennum innblástur og trú á að allt sé hægt með elju, þrautseigju og þrotlausri vinnu. Það er engin greið leið á toppinn og það er stefna okkar í Framsókn að við eigum að gera enn betur í því að styðja við íþróttastarf og sérstaklega þau sem eiga möguleika á að skara fram úr og ná árangri á heimsmælikvarða. Vinna við þetta brýna verkefni er í farvegi og von er á þingsályktunartillögu á haustdögum.
Að lokum vil ég staðfæra og útvíkka fleyg orð Winstons Churchills þegar hann var á stríðstímum beðinn um að skera niður fjármagn til lista: Ef ekki væri fyrir íþróttir, menningu og listir, til hvers erum við?