154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

öryggi Íslands með áherslu á norðurslóðir.

[14:30]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Hlýnun, aukin ásókn ferðamanna, sviptingar í alþjóðamálum og opnun siglingaleiða leiðir til meiri viðskipta og borgaralegra og hernaðarlegra athafna og gerir norðurslóðir allar viðkvæmari fyrir slysum og misskilningi milli aðila. Reynslan hefur sýnt að ef slík slys gerast eru möguleikar til björgunaraðgerða á svæðinu mjög takmarkaðir. Nýlegt dæmi um slíkt var síðastliðið haust þegar MV Ocean Explorer strandaði á svæðinu við Grænland en um borð voru 206 farþegar. Skipið var um 240 km frá næstu byggð og 1.400 km frá næsta flugvelli. Það tók þrjá daga að losa skipið og björgun gekk afar vel fyrir röð ýmissa tilviljana, eins og þá að nokkuð nærri svæðinu sem skipið strandaði á var danskt rannsóknarskip sem gat aðstoðað.

Áður hefur verið lagt til á Alþingi að Ísland bjóði sig fram sem aðsetur alþjóðlegrar björgunarmiðstöðvar fyrir norðurslóðir. Þarna felast tækifæri, ekki einungis til þess að samhæfa aðgerðir björgunaraðila á svæðinu fyrir norðan okkur heldur einnig til að fá aukið fjármagn, mannskap og tæki til þess að tryggja betri þjónustu innan okkar eigin landhelgi. Einnig er mikilvægt að horft sé til þess að tryggja öryggi fjarskipta á svæðinu en nýleg dæmi frá Finnlandi sýna okkur að Rússar eru óhræddir við að trufla GPS-merki sem flugvélar og skip nýta sér til leiðsögu. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og orsakað slys af enn stærri stærðargráðu. Sem herlaus þjóð er það okkar að taka frumkvæði í að tryggja borgaralega björgunargetu á þessu svæði og er það von mín að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir því sem fyrst.