öryggi Íslands með áherslu á norðurslóðir.
Virðulegi forseti. Öryggisáskoranir Íslands eru margar, flóknar og sumar alvarlegar og við þurfum að fást við þær með viðeigandi hætti í samstarfi við vinaþjóðir okkar. Við lifum í mikið breyttum heimi. Við því höfum við verið að bregðast, eins og með uppfærðri þjóðaröryggisstefnu, og verðum að gera áfram bæði sem fullvalda þjóð á okkar forsendum, á grundvelli okkar sérstöðu sem vopnlausrar þjóðar og eyríkis í Norður-Atlantshafi en ekki síður í samstarfi við bandalagsþjóðir okkar og þær þjóðir sem deila með okkur grunngildum og sýn á samfélag þjóðanna og standa vörð um mannréttindi, lýðræði og dómskerfið.
Við erum að treysta varnir okkar og viðbúnað vegna nýrra ógna; fjölþáttaógna, netöryggisógna og mögulegra árása á innviði. Við verðum að setja aukinn þunga í uppbyggingu traustra innviða á sviði raforkuöryggis, fjarskiptaöryggis og á fleiri sviðum. Það öryggi felst ekki einungis í aðgangi að slíkum innviðum heldur ekki síður því að hægt sé að treysta á það öllum stundum. Ef engu að síður verður rof vegna náttúruhamfara, slysa eða skemmdarverka þá sé viðbúnaður til staðar til að koma virkni þeirra innviða aftur í lag sem allra fyrst. Þetta verkefni er ekki síst vandasamt þar sem fjarlægðir eru miklar, strjálbýlt, ótryggt veðurfar, samgöngubrestir eða aðrar þær aðstæður sem geta skapað vanda.
Sú er einnig staðan víða á norðurslóðum. Vaxandi kapphlaup stórríkja og ríkjasambanda um yfirráð yfir auðlindum sem þar er að finna er einmitt mikið áhyggjuefni og svo viðbótaráhætta sem samfélögum á þessum slóðum, vistkerfum og innviðum stafar af þeirri þróun. Þá hljótum við að horfa til mikilvægis þess að tryggja sem best aðfangakeðjur, ekki síst til að viðhalda grunninnviðum, og að til staðar séu neyðarbirgðir, svo sem lyfja og eldsneytis, og matarbirgðir og að hér sé öflug matvælaframleiðsla.
Við þurfum ávallt að leita allra leiða til að tryggja frið og friðsamleg samskipti þjóða og gagnkvæma virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti þeirra til að koma í veg fyrir stríð. Ákalli um að leggja meira til öryggismála eigum við ekki síst að mæta með því að auka hlut okkar í viðbúnaði vegna björgunarstarfa á Norður-Atlantshafi og mikilvægum borgaralegum verkefnum.