fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Ég hélt að það ætti að fjármagna kjarasamningana úr almenna varasjóðnum. Það voru rúmir 40 milljarðar settir í varasjóð til að fjármagna kjarasamninga. En ég tel hins vegar rétt að þetta komi fyrir þingið í formi frumvarps til fjáraukalaga. Eins og kom fram í máli ráðherra þá eru þetta svipuð ákvæði, efnislega sömu ákvæðin. Það var hér komið inn á Landsvirkjun. Ástæðan fyrir góðri afkomu og litlum skuldum Landsvirkjunar er einfaldlega sú að það er ekkert virkjað. Fyrirtækið er ekki að skuldsetja sig til að fara í framkvæmdir og við þekkjum öll ástæður fyrir orkuskortinum.
Í fyrra andsvari var komið inn á fjármögnun í ár á útgjöldum ríkissjóðs vegna kjarasamninga. En mig langar að tala um fjármögnun á næsta ári eins og kemur fram í fjármálaáætlun. Þar segir, með leyfi forseta:
„Það er gert til þess að skapa svigrúm fyrir aukin útgjöld í tengslum við aðkomu ríkissjóðs að gerð kjarasamninga á almennum markaði sem munu koma fram af miklum þunga á næsta ári, m.a. með frestun á gildistöku nýs örorkubótakerfis til 1. september 2025 …“
Það er líka fjallað um þetta síðar í greinargerðinni með fjármálaáætlun og þar kemur fram á bls. 65 að ríkið ætli á næsta ári að spara sér 10,1 milljarð með því að fresta gildistöku nýs örorkukerfis í landinu. Það virðist vera að á næsta ári eigi öryrkjar að borga framlag ríkisins vegna kjarasamninganna.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Var það rætt í kjarasamningunum, í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins, (Forseti hringir.) hvernig ríkið myndi fjármagna þetta? Var komið inn á það að það yrðu öryrkjar sem myndu greiða þetta af mestum þunga á næsta ári, 10,1 milljarð? (Forseti hringir.) Þetta er fátækasti hópur landsins sem getur ekki farið í verkföll. Ef það er, eins og kemur fram í gögnum málsins, að það séu öryrkjar í landinu sem eru að borga kjarasamningana þá er það frétt til næsta bæjar.