fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Það skiptir engu máli hversu oft stjórnarandstöðuþingmenn koma hingað upp og halda þessari þvælu fram, að það sé verið að fjármagna kjarasamninga með frestun á gildistöku breytinga fyrir öryrkja, það er alltaf jafn rangt og jafn vitlaust og jafn ömurlegt að hlusta á þennan málflutning, hv. þingmaður. Það er ömurlegt að hlusta á hann aftur og aftur þó að þessu hafi verið margsvarað. Nú langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvenær er gildistaka þessara breytinga áætluð í frumvarpinu? Er búið að ljúka því frumvarpi sem er hér hjá þinginu? Verður því lokið í vor eða mun stjórnarandstaðan vera í málþófi þannig að það muni ekki klárast og á kostnað öryrkja? Er það það sem hv. þingmaður er að vísa til? Verður frumvarpið klárað á þessu vorþingi og verður þá nægjanlegur tími til að klára alla þá undirbúningsvinnu sem þarf að gera áður en þessar miklu breytingar taka gildi 1. september 2025? Það hefur engin breyting verið gerð til þess að fjármagna kjarasamninga. Þetta er bara staðreynd. Frumvarpið er hér inni í þinginu með gildistöku 1. september 2025. Í fyrrverandi fjármálaáætlun var búið að gera ráð fyrir fjármununum alla tíð. Hefðum við átt að birta þessa fjármálaáætlun með skekkju upp á 10 milljarða? Situr ekki hv. þingmaður í fjárlaganefnd og vill hafa hlutina eins rétta og örugga og þeir geta verið, upp á 10 milljarða? Þetta er einfaldlega rangt og dálítið óþolandi að þurfa að sitja undir þessari umræðu daginn út og daginn inn þegar það er verið að egna upp hópi fólks af rangindum.
Ég vildi gjarnan fá að koma inn á það að það var líka rangt hjá hv. þingmanni þegar hann fjallaði um að Landsvirkjun væri svona sterk að burðum vegna þess að hún virkjaði ekki neitt. Það er rangt. Það hafa verið virkjanir í gangi. Hins vegar er það af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess að menn hafa farið í endursamninga, það eru hærri verð og gott árferði, og það hefur gert það að verkum að Landsvirkjun er orðin skuldlaus.