154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

fjáraukalög 2024.

1078. mál
[16:34]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Sannleikanum verður hver sárreiðastur, segir gott íslenskt máltæki. Það er verið að æsa sig upp yfir því þegar ég les upp úr greinargerð fjármálaáætlunar. Ég skal bara lesa þetta upp aftur, með leyfi forseta:

„Það er gert til þess að skapa svigrúm fyrir aukin útgjöld í tengslum við aðkomu ríkissjóðs að gerð kjarasamninga á almennum markaði sem munu koma fram af miklum þunga á næsta ári, m.a. með frestun á gildistöku nýs örorkubótakerfis til 1. september 2025 …“

Það á að skapa svigrúm til að greiða fyrir kjarasamningunum með því að að fresta gildistöku nýs örorkubótakerfis. Svo segir á bls. 65, með leyfi forseta:

„Önnur veigamikil breyting frá gildandi fjármálaáætlun sem fellur undir félags- og tryggingamál er seinkun gildistöku nýs örorkulífeyriskerfis frá ársbyrjun 2025 til 1. september sama ár. Með breytingunni lækkar framlag sem gert hafði verið ráð fyrir í gildandi fjármálaáætlun til nýs örorkulífeyriskerfis um 10,1 ma.kr. vegna ársins 2025.“

Þetta stendur í gögnum frá ríkisstjórninni. Við erum búin að heyra það núna frá 2021, þegar þetta kjörtímabil byrjaði, að það ætti að bíða eftir heildarendurskoðun örorkubótakerfisins og þá ætti að setja pening í málaflokkinn. (Gripið fram í.) Þá ætti loksins að setja meiri peninga í málaflokkinn. En svo segir í greinargerðinni líka, með leyfi forseta:

„Frá árinu 2026 má ætla að nýtt örorkukerfi hafi verið tekið upp af fullum þunga og að heildaráhrif breytinganna nemi 18,1 ma.kr. á ársgrundvelli.“

Það er á næsta kjörtímabili. Það er ekki á þessu kjörtímabili, í ár. Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að standa í lappirnar fyrir veikasta þjóðfélagshóp samfélagsins sem eru öryrkjar. Það eru þeir sem eiga að borga fyrir stóran hluta þessa kjarasamninga í landinu. Það stendur í fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 og svo kemur hæstv. fjármálaráðherra og segir að ég sé að fara með rangt mál. Hann skal bara lesa bls. 54 í greinargerð með fjármálaáætlun og bls. 65. Þetta stendur skýrum stöfum. Það hafa verið fréttir í blöðum og fjölmiðlum og þetta er alveg kristaltært. (Forseti hringir.) Ráðherrar hafa komið hér aftur og aftur og sagt: Jú, það á að setja meiri pening til öryrkja þegar heildarendurskoðunin gerist. Hvað gerist svo? Jú, það á að fresta þessu í átta mánuði. Til hvers? Til að borga fyrir kjarasamninga og það er umræðuefnið hér í dag.