154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

fjáraukalög 2024.

1078. mál
[16:52]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp til fjáraukalaga lýtur fyrst og fremst að því að tryggja fjárveitingar vegna aðgerða sem tengjast gerð kjarasamninga fyrr á árinu. Ég tel að það hafi verið skynsamlegt að ríkissjóður hafi komið inn í til að liðka fyrir kjarasamningum og markmið verkalýðshreyfingarinnar voru mjög skýr. Það var að ná niður vaxtastigi í landinu og ná niður verðbólgu í landinu.

Þegar fjárlög ársins í ár eru skoðuð eru upphafleg heildarútgjöld ríkissjóðs 1490,9 milljarðar kr. Í frumvarpi þessu til fjáraukalaga er m.a. sérstakur einskiptisvaxtastuðningur upp á 6 milljarða, barnabætur upp á 3 milljarða, gjaldfrjálsar máltíðir upp á 1,5 milljarða, hækkun húsnæðisbóta upp á 1,25 milljarða, hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði upp á 600 milljónir, hlutdeildarlán til fyrstu kaupa húsnæðis 320 milljónir, vinnustaðanámssjóður 150 milljónir, bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu 50 milljónir, hækkun hámarksábyrgðar úr Ábyrgðasjóði launa 49 milljónir. Þetta er breyting á heildarútgjöldum ríkissjóðs í ár upp á tæplega 13 milljarða kr. og heildarútgjöldin í ár fara upp í tæplega 1.504 milljarða, úr 1.491 milljarði í 1.504 milljarða. Þetta er í fyrsta skipti sem ríkisfjárlögin fara yfir 1.500 milljarða kr.

Til að setja þessa tölu í samhengi þá fóru fjárlögin í fyrsta sinn yfir 1.000 milljarða múrinn árið 2020 og þá vegna Covid. Það var í fyrsta sinn sem við náðum yfir 1.000 milljarða múrinn. Núna erum við komin yfir 1.500 milljarða múrinn. Það er ansi mikil útgjaldaaukning á ekki lengri tíma, 50% vöxtur á fjórum til fimm árum. Ekki er nú ráðdeildin meiri hjá stjórnarflokkunum en svo, en að vísu er verið að setja þetta í samhengi við verðbólgu og fólksfjölgun. Eftir því sem fólki fjölgar þá aukast bæði tekjur og gjöld ríkissjóðs og svo bitnar verðbólgan auðvitað á öllu sem eitthvað kostar. Þá er vert að minna á að ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um að fresta fjármagni til almannatrygginga sem átti að koma inn um næstu áramót eins og hér hefur verið rætt áður.

Það sem hér er undir líka og er gríðarlega mikilvægt að skoða er hvernig þetta er fjármagnað, hvernig á að fjármagna þessa 13 milljarða í ár og á næstu árum. Ég vona að það hafi verið rætt í viðræðum við launþegasamtökin og vinnuveitendur vegna þess að eins og hér hefur komið fram skiptir það gríðarlega miklu máli. Ef á að taka 10 milljarða úr ríkisfyrirtæki, Landsvirkjun, og setja inn í hagkerfið eykur það þenslu. Svo einfalt er það. Við erum að fara að ræða þjóðarsjóð á eftir. Það er til að koma í veg fyrir það að allir peningar af þjóðarauðlindunum streymi beint inn í hagkerfið og auki þenslu. Ríkið ætlar hins vegar að nota þessa 10 milljarða í þessi tilfærslukerfi sem hér eru.

Þetta er einskiptisaðgerð, 10 milljarðar. Önnur einskiptisaðgerð sem ég fór hér yfir í gær í andsvörum við hæstv. ráðherra er sú aðgerð að fresta því að nýtt örorkubótakerfi taki gildi, þ.e. 1. september 2025 en ekki um áramótin. Ég vil taka það fram að minn flokkur er á móti þessu nýja kerfi eins og það liggur fyrir. Við erum á móti því, starfsgetumatinu og öðru slíku. Við teljum hins vegar að það eigi að nota þennan pening með öðrum hætti til hagsbóta fyrir öryrkja, t.d. með því að hækka frítekjumark svo að þeir geti farið út á vinnumarkaðinn í auknum mæli og aflað sér tekna í tvö ár og fundið sína fjöl á vinnumarkaðnum og í lífinu og þátttöku í samfélaginu án þess að verða fyrir tekjuskerðingu í tvö ár. Það er sjálfsagt að gera það og ég kalla eftir því að verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur upplýsi um það hvort það var rætt um fjármögnun á þessum tilfærslukerfum, á þessu fjármagni, hvernig ríkið myndi fjármagna kjarasamningana í ár, hvernig ríkissjóður ætlaði að fjármagna þá peninga til þessara velferðarmála sem hér hefur verið rætt um, með hvaða hætti ætti að gera það og þá án þess að skapa þenslu vegna þess að það snýst allt um það. Þetta snýst allt um að ná niður verðbólgunni og sjá til þess að vaxtastig í landinu lækki. Þá skiptir fjármögnunin mjög miklu máli. Ef það hefði verið samið um það að það ætti að fórna veikasta hópi landsins, fátækasta fólki landsins, öryrkjum í landinu, á næsta ári, sjá til þess að þeir fengju ekki nýtt örorkukerfi og spara ríkissjóði á því fjárlagaári, á fjárlagaárinu 2025, um 10,1 milljarð eins og kemur fram í fjármálaáætlun, á bls. 65 og 54, að það ætti að spara útgjöld ríkissjóðs til öryrkja um 10,1 milljarð og fjármagna þannig kjarasamningana — þarna mun ríkið fjármagna sinn hluta af kjarasamningunum með því að spara á öryrkjunum. Það vil ég fá að vita, hvort launþegahreyfingin hafi staðið að þeim gjörningi eða ekki. Ef ekki þá er gott að vita það vegna þess að fjármögnunin skiptir mjög miklu máli og mér finnst alveg ótrúlegt að launþegahreyfingin hafi getað staðið að svoleiðis gagnvart hópi sem getur ekki farið í verkfall, sem á rétt á því samkvæmt stjórnarskránni, 76. gr. stjórnarskrárinnar, að ríkið styðji öryrkja, þá sem eru veikir, svo þeir falli ekki í örbirgð. Það er grundvallaratriði.

Það virðist vera að fjármögnunin á þessu í ár og á næsta ári sé svona einskiptisaðgerð. En svo fellur þetta líka af þunga árið 2026, en þá er þessi núverandi ríkisstjórn farin frá völdum. Allt þetta kjörtímabil hefur maður heyrt um það að ríkið sé alveg að fara að setja meiri pening til öryrkja, alveg að fara að gera það, að klára heildarendurskoðunina. En hvenær á þetta allt saman að taka gildi? Jú, þetta á að taka gildi rúmlega þremur vikum áður en kjörtímabilinu lýkur. Kjörtímabilinu mun ljúka 21. september á næsta ári. Nýja örorkukerfið á að taka gildi 1. september. 20 dögum seinna verður kjörtímabilið runnið á enda og við skulum vona að það verði kannski kosið í haust eða fyrr. En það breytir því ekki að það að vera að tala allt kjörtímabilið um að þeir ætli nú að fara í heildarendurskoðun og fara að gera eitthvað fyrir öryrkja og gera það síðan þremur vikum fyrir kosningar, það er ekki að gera neitt, og líka það að fjármagna sinn hlut af kjarasamningunum með því að spara hjá öryrkjum um 10,1 milljarð, það er ekki gott. Það er siðferðilega ámælisvert. Ég trúi ekki öðru en að verkalýðshreyfingin hafi staðið í lappirnar og séð til þess að ef hún hefði vitað það þá hefði hún stigið niður og sagt: Nei, við viljum ekki að það sé fjármagnað með þessum hætti.

Heildarumfang aðgerðanna sem hér eru til umfjöllunar nemur um 80 milljörðum kr. á samningstímanum, samningstíma nýrra kjarasamninga sem ná yfir árin 2024–2028. Í ár eru það vissulega 13 milljarðar en að jafnaði er þetta um 16 milljarða útgjaldaaukning og auðvitað þarf að vera varanlegur tekjugrunnur hjá ríkinu til að fjármagna þetta. Það liggur ekki fyrir. Peningarnir frá Landsvirkjun, 10 milljarðarnir, koma ekki á næsta ári. Það verður hins vegar frestun hjá öryrkjunum. Þar reddast 10 milljarðarnir. Það eru ekki varanleg rekstrarútgjöld, það er ekki búið að sjá fyrir tekjum ríkissjóðs til að standa varanlega fyrir þessari aukningu í útgjöldum ríkissjóðs og aðkoma ríkisins felur í sér að gerðar eru varanlegar breytingar á tilfærslukerfunum samkvæmt því sem kemur fram í greinargerð með fjármálaáætlun. Þessar varanlegu breytingar á tilfærslukerfunum eru ekki varanlega fjármagnaðar. Svo einfalt er það. Þessar aðgerðir núna eru þensluhvetjandi. Þær ganga gegn markmiðum kjarasamninganna vegna þess að það er verið að setja meiri peninga inn í kerfið. Það er ekki verið að spara annars staðar eða hækka skatta. Það er verið að setja meiri peninga inn í kerfi sem í sjálfu sér felur í sér þensluaukningu. Ég vil minna á að aðrar leiðir eru til að fjármagna stuðning stjórnvalda við kjarasamningana án þess að ganga þurfi að öryrkjum. Við í Flokki fólksins höfum t.d. bent á að hækka bankaskattinn eða veiðileyfagjöld. Veiðileyfagjöld í ár eru 10 milljarðar. Áfengisgjaldið er 26 milljarðar. Vissulega áttu veiðigjöldin að vera 12 milljarðar en út af vísindalega stjórnuðum loðnuveiðum þá finnst ekki loðnan. Svona eru vísindin góð og klár. Það er búið að lækka það niður í 10 milljarða. Það eru leiðir til að ná þessu markmiði og það er hægt að gera jafnvel gott betur án þess að fjármagna með þessum hætti sem hér hefur komið fram í umræðunum og ég hef farið yfir að hluta.

Varðandi almenna varasjóðinn þá voru settir í hann rúmir 40 milljarðar króna og það var m.a. gert vegna Grindavíkur, jarðhræringanna á Reykjanesskaga, og líka vegna kjarasamninga og þar voru peningar sem átti að nota í þetta og vissulega eru það greinar sem eru eðlislíkar en það er peningur sem er enn þá í varasjóðnum sem er ekki verið að nota núna til kjarasamningsgerðar. Það hefði verið hægt að nota þá sérstaklega núna og á næsta ári. En það virðist vera orðið markmið ríkissjóðs að hafa skilað afgangi á varasjóði eins og á síðasta ári, það var farið í skattheimtu á einum og sama deginum þegar var farið í fyrstu varnargarðagerð á Reykjanesi. Þá var bent á varasjóðinn en það mátti ekki nota hann. Ég tel að fjármögnunin sé gríðarlega mikilvæg hvað þetta varðar og það sem skiptir líka miklu máli er að fjármögnunin má ekki leiða til þensluaukningar og hún er að gera það með 10 milljörðum í ár sem koma frá ríkisfyrirtækinu og líka það að á næsta ári á að taka þetta af veikasta samfélagshópi þjóðarinnar og það er ekki siðferðilega rétt. Ég ætla rétt að vona að verkalýðshreyfingin upplýsi okkur um það hvort hún hafi samið líka um fjármögnunina vegna þess að hún skiptir líka máli.