Þjóðarsjóður.
Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á í máli mínu þá sé ég ekki fyrir mér að málinu verði lokið á þessu stutta vorþingi sem eftir er þannig að allar ábendingar og hugmyndir um hvað betur mætti fara í frumvarpinu eru vel þegnar. Ég get vel séð fyrir mér að það þurfi að dýpka enn frekar til að mynda þau viðmið sem sett eru fram í frumvarpinu sem síðan fjárfestingarstefna sem stjórn sjóðsins mun taka byggir á. Þar er mikilvægt að horfa til framtíðar en líka bara til þeirra sambærilegu sjóða sem við þekkjum annars staðar og eru sambærilegir og ég fór nú aðeins yfir í máli mínu að það er kannski erfitt að bera akkúrat saman þennan sjóð vegna þeirrar stöðu sem við erum svo heppin að búa við hér á Íslandi, annars vegar með ágætar náttúruhamfaratryggingar, annars vegar í Náttúruhamfaratryggingu Íslands og síðan ofanflóðasjóði og síðan hins vegar í uppsöfnunarkerfi lífeyriskerfisins og þeirri staðreynd að við erum að nýta endurnýjanlegar auðlindir meira og minna með sjálfbærum hætti á meðan margir af slíkum sjóðum byggjast á því að þeir eru að ganga á takmarkaðar auðlindir og tekjurnar þar af leiðandi tímabundnar.
Ég ítreka að ég er opinn fyrir öllum þeim ábendingum sem gera það að verkum að þetta mál verði betra. Mér finnst skipta máli að við náum almennri umræðu í samfélaginu um mikilvægi slíkra sjóða og að við séum að átta okkur á því að við þurfum að vera undir allt mögulegt búin og það höfum við lært einfaldlega á síðustu áratugum. Ég tek undir með hv. þingmanni að loftslagsváin getur líka aukið áhættur okkar á slíkum náttúruhamförum sem við þekkjum kannski ekki beint frá Íslandi í dag.