Þjóðarsjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir svarið. Það er von mín að í þeirri umræðu sem á sér stað, bæði innan þingsins og í samfélaginu, sé horft til þessa máls, að við séum ekki að fjárfesta í olíufyrirtækjum og öðru slíku.
Mig langaði í seinna andsvarinu aðeins að ræða um stærð sjóðsins. Í greinargerðinni, í kafla 3.2., stendur, með leyfi forseta, að „stefnt verði að því að framtíðarstærð sjóðsins verði nálægt 400–450 milljörðum kr. … “
Nú er það þannig að það er verið að tala um að setja arðgreiðslur úr Landsvirkjun, og aðeins 10% af þeim til að byrja með, sem eru 1–2 milljarðar — það mun taka svolítinn tíma að komast upp í 450. Sér ráðherra fyrir sér að þetta muni hækka eða að það komi aðrir stofnar en arðgreiðslur frá Landsvirkjun til þess að fjármagna þetta, t.d. ónotaður varasjóður á hverju ári eða eitthvað slíkt? Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að við náum upp í 450 milljarða?