tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Frumvarpinu er ætlað að einfalda regluverk þegar kemur að erlendri fjárfestingu með það fyrir augum að gera íslenskum fyrirtækjum auðveldara um vik að sækja fjármagn erlendis frá og efla þar með samkeppnishæfni okkar við önnur lönd um erlent fjármagn í því skyni að styðja við íslenskt atvinnulíf og þó einkum nýsköpunarfyrirtæki sem treysta gjarnan á aðgang að lánsfé.
Ef ekkert er að gert er sá möguleiki fyrir hendi að Ísland dragist aftur úr öðrum ríkjum þegar kemur að erlendri fjárfestingu og nýsköpun. Efling nýsköpunar er stór liður í áformum stjórnvalda um stuðning við vaxtargetu hagkerfisins í því skyni að festa þessa nýju stoð efnahagslífsins enn betur í sessi.
Í fyrsta lagi ætla ég að fjalla hér um hagnað erlendra aðila af sölu hlutabréfa, herra forseti. Hvað meginefni frumvarpsins varðar ber hér fyrst að nefna afnám skattskyldu erlendra aðila af söluhagnaði hlutabréfa í íslenskum félögum samhliða brottfalli undanþágu frá staðgreiðsluskyldu. Þar sem staðgreiðsluskyldan er byggð á því að til staðar sé takmörkuð skattskylda er ekki ástæða til að hafa sérstaka undanþágu frá henni. Af því leiðir hins vegar að ef menn uppfylla ekki skilyrði fyrir undanþágunni er til staðar staðgreiðsluskylda. Samkvæmt lögum um tekjuskatt bera erlendir aðilar takmarkaða skattskyldu af tekjum sínum frá Íslandi og er þeim m.a. gert að sæta skattskyldu af hagnaði af sölu hlutabréfa í íslenskum fyrirtækjum. Í framkvæmd er hins vegar algengt að fallið sé frá skattlagningu í þessum tilvikum sem rekja má til ákvæða tvísköttunarsamninga annars vegar og frádráttarákvæðis í tekjuskattslögum hins vegar. Flestir tvísköttunarsamningar sem Ísland er aðili að eru á þá leið að skattlagningarréttur á söluhagnað hlutabréfa, þó ekki fasteignafélaga, er eingöngu í búseturíki eiganda. Í þeim tilfellum fellur Ísland frá skattlagningarrétti sínum að því gefnu að viðkomandi aðili geti beitt samningum og fái staðfestingu þess efnis frá íslenskum skattyfirvöldum. Í mörgum samningum má finna undantekningu þegar um einstakling er að ræða. Þá er skilyrði að viðkomandi hafi ekki haft heimilisfesti á Íslandi í tiltekinn tíma frá sölu. Oft er miðað við 3–10 ár. Sé litið til tekjuskattslaga er þar mælt fyrir um fullan frádrátt m.a. hlutafélaga á móti skattskyldum söluhagnaði í öðrum hlutafélögum. Þetta ákvæði gildir einnig um söluhagnað sambærilegra hlutafélaga innan EES, í Sviss eða Færeyjum, en til þess að njóta góðs af ákvæðinu þarf að skila inn framtali í almennri álagningu að liðnu rekstrarárinu. Hafi staðgreiðsla hagnaðar af sölu félags farið fram við greiðslu í janúar til að mynda þá gætu liðið allt að 22 mánuðir þangað til skatturinn af hagnaðinum sem haldið var eftir í staðgreiðslu kemur til endurgreiðslu.
Töluvert umstang getur fylgt undanþágu frá staðgreiðsluskyldu eða endurgreiðslu á grundvelli tvísköttunarsamnings eða endurgreiðslu á grundvelli tekjuskattslaga. Þegar um er að ræða erlend félög með dreift eignarhald getur enn fremur reynst erfitt að finna út hverjir eigendurnir eru á tilteknum tímapunkti, hvar þeir eru heimilisfastir, miðla upplýsingum til þeirra og óska eftir gögnum þannig að hægt sé að beita tvísköttunarsamningi. Þetta á sérstaklega við þegar eignarhald á bréfum fer í gegnum milliliði, svo sem vörslureikninga, eða þegar bréf eru í eigu sjóða eða ósjálfstæðara skattaðila. Þá er oft erfitt eða ómögulegt fyrir staðgreiðsluskyldan aðila að átta sig á hvaða skatti honum ber að halda eftir í staðgreiðslu og hvort hann geti beitt tvísköttunarsamningi.
Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að bent hefur verið á að mikil óvissa ríkir um hvort tilteknir erlendir aðilar geti beitt tvísköttunarsamningi Íslands og Bandaríkjanna sem talið er að geti skýrt fremur litla fjárfestingu bandarískra aðila hér á landi í samanburði við nágrannalönd okkar. Framangreint má telja að hafi fráhrindandi áhrif á fjárfestingar á Íslandi, sérstaklega þegar litið er til sambærilegra reglna í nágrannalöndum okkar en ekkert annað ríki Norðurlanda leggur skatt á hagnað erlendra aðila af sölu hlutabréfa, hvort sem um ræðir menn eða lögaðila. Sé horft til Þýskalands, Frakklands, Spánar, Bretlands, Belgíu eða Hollands þá er sama niðurstaða þegar kemur að lögaðilum en undantekningar eru frá því þegar kemur að skattskyldu erlendra manna.
Í öðru lagi ætla ég, virðulegi forseti, að fjalla um hagnað erlendra aðila af hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta. Í frumvarpinu er lagt til að skattskylda erlendra aðila vegna hagnaðar af sölu hlutdeildarskírteina í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta hér á landi verði felld brott. Í dag er staðan sú að farið er með tekjur þessar sem vaxtatekjur og eru þær skattskyldar í 12% skatthlutfalli, þó þannig að erlendir menn njóta 300.000 kr. frítekjumarks. Flestir tvísköttunarsamningar sem Ísland á aðild að kveða á um að eingöngu búseturíki eiganda hafi skattlagningarrétt á vaxtatekjum og þar af leiðandi eru skatttekjur í dag af þessum viðskiptum takmarkaðar. Með því að afnema skattskylduna er verið að liðka fyrir erlendri fjárfestingu í íslenskum sjóðum sem hefur verið takmörkuð. Í því felst fyrst og fremst einföldun regluverks í kringum fjárfestinguna en til þess að beita tvísköttunarsamningi þarf að sækja um það til Skattsins og afla m.a. skattskylduvottorðs. Öll umsýsla staðgreiðsluskyldra aðila verður enn fremur einfaldari. Sé horft til nágrannaríkja okkar eru skatttekjur almennt ekki skattskyldar nema í undantekningartilfellum. Enn fremur má benda á að vaxtatekjur erlendra aðila voru lengi vel ekki skattlagðar hér á landi er skattskyldan var tekin upp í kjölfar fjármálakreppunnar 2008. Með breytingunni er stefnt að því að hér verði sambærilegar reglur og gilda í nágrannalöndum okkar.
Virðulegi forseti. Í þriðja lagi ætla ég að fjalla um nýtingu kaupréttar í nýsköpunarfyrirtækjum. Til að draga úr óskýrleika er í frumvarpinu lögð til orðalagsbreyting sem ætlað er að árétta og skýra nýlega samþykktar reglur um kauprétti til handa sprotafyrirtækjum. Með breytingunni er áréttað að vinna við markaðs- og sölustarfsemi uppfylli skilyrði ákvæðisins en ekki eingöngu vinna við að búa til vöru eða þjónustu sem hið staðfesta verkefni snýr að.
Í fjórða lagi ætla ég að fjalla um yfirfæranlegt rekstrartap. Samkvæmt tekjuskattslögum er lögaðilum og sjálfstætt starfandi rekstraraðilum heimilt að draga frá tekjum sínum eftirstöðvar rekstrartapa síðustu 10 ára á undan tekjuári. Í lögunum er enn fremur að finna þann varnagla að ekki er hægt að kaupa og selja uppsafnað skattalegt tap nema þar að baki liggi annar efnahagslegur tilgangur en sá að komast yfir tapið. Samkvæmt lögunum hafa fyrirtæki því 10 ár til að mynda hagnað. Takist þeim ekki að mynda hagnað innan 10 ára þá fyrnist elsta tapið. Regla sem þessi getur verið óheppileg þegar um er að ræða fjárfestingar með háum upphafskostnaði þar sem tíma tekur að greiða upp lán og mynda tekjustofna. Í frumvarpinu er því að lokum lagt til að 10 ára tímamörkin verði felld brott og er það í samræmi við þá grunnreglu að skattur eigi almennt að reiknast af heildartekjum að frádregnum heildarútgjöldum á líftíma atvinnureksturs, óháð einstökum uppgjörstímabilum á þeim líftíma. Breytingin væri enn fremur í samræmi við reglur í nágrannalöndum okkar.
Gera má ráð fyrir að áhrif á tekjur ríkissjóðs, og þá er ég að tala um frumvarpið í heild sinni, séu til lækkunar um 40–240 millj. kr. á ári verði frumvarpið að lögum. Á móti er búist við tekjum í gegnum aukna erlenda fjárfestingu sem erfitt er að setja fingurinn á hvað fjárhæðir varðar. Töluverð óvissa er með áhrif þess að taka út tímamörk á nýtingu eftirstöðva rekstrartapa en áhrifin ættu að koma fram eftir 11 ár, enda snýr breytingin aðeins að tapi sem myndast frá og með árinu 2025. Í öðrum löndum hefur verið gengið út frá því að sambærileg breyting, þ.e. að fella niður 10 ára tímamörkin, hefði takmörkuð áhrif á tekjur ríkissjóðs.
Frú forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.