154. löggjafarþing — 108. fundur, 7. maí 2024.
tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.
921. mál
Virðulegur forseti. Ég fullyrði að ráðuneytið, þegar það verður kallað fyrir nefndina til að fara ítarlegar yfir þetta, getur verið með upplýsingar um dæmi eins og hv. þingmaður nefndi og farið ítarlegar ofan í áhrif af einstökum greinum og er mikilvægt að nefndin gefi sér góðan tíma til að skoða það sem skoða þarf.