154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

lögræðislög.

925. mál
[18:26]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í samráðið við gerð þessa frumvarps. Ég skoðaði þær umsagnir sem komu í samráðsgáttinni og þar get ég ekki séð — þarna er Geðhjálp, sem eru risastór samtök um geðheilbrigðismál. Þetta eru samtök notenda, þetta eru samtök aðstandenda, samtök fagfólks og ég get ekki séð að neitt tillit sé tekið til umsagna þeirra við vinnslu þessa máls.

Svo kom líka umsögn frá ÖBÍ réttindasamtökum, sem eru einnig risastór samtök sem hafa ítrekað bent á að breytingarnar uppfylla ekki skyldur okkar samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og báðu sérstaklega um að þau yrði tekin með í vinnuna. Umsögnin þeirra var mjög stutt. Í raun og veru segir hún bara: Takið okkur með í vinnunna. Enda búa þau yfir gífurlegri þekkingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og búa yfir gífurlegri þekkingu á málefnum fatlaðs fólks, þar með talið fólks með geðrænar áskoranir og geðsjúkdóma.

Mér þykir furðulegt að þetta hafi ekki verið gert og mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna ekki? Þetta er bara frekar einföld spurning. Þarna eru stórir hagaðilar sem eru í raun og veru að berjast fyrir réttindum mjög viðkvæmra hópa í samfélaginu sem þetta frumvarp fjallar beint um og það sætir furðu að þau hafi ekki verið tekin inn við vinnslu þessa frumvarps í samráð og að vinna með ráðherra, bara á frumstigum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig stendur á því og hverjir í rauninni sömdu þetta frumvarp?