lögræðislög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Vinna við breytingar á þessum lögum hefur verið í gangi alveg frá árinu 2015. Þá átti sér stað víðtækt samráð og þetta frumvarp og þær breytingar sem hér eru lagðar til byggja að mestu leyti á þeirri vinnu. Það bárust umsagnir og þeirra er getið og athugasemda þeirra aðila sem sendu inn umsagnir er getið í greinargerð með frumvarpinu. Allar umsagnir voru skoðaðar og það var reynt að bregðast við þeim af öllum mætti. Það var brugðist við mörgum en ekki hægt að bregðast við þeim öllum.
Ég vil sömuleiðis segja að það var haft samráð. Árið 2019 samþykkti Alþingi, eins og kom fram í máli mínu hér áðan, þingsályktun í þá veru að endurskoða lögræðislögin. Sú nefnd hefur verið að störfum og haft hefur verið samráð við þá nefnd við undirbúninginn að samningu þessa frumvarps.