lögræðislög.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég er enn stopp við að það hafi verið haft víðtækt samráð árið 2015. Það er að verða áratugur síðan það var og það er rosalega margt búið að breytast ef við skoðum bara fræðin og þekkinguna sem við höfum í dag á þessum málaflokki. Það eru dæmi um það og bara mikil þekking og rannsóknir sem sýna fram á að það er ekki þörf á því að beita nauðung á þann hátt sem verið er að leggja til að setja í lög með þessu frumvarpi. Það er hægt að fara aðrar leiðir og það er það sem fræðin og þekkingin eru að segja okkur og það er það sem Geðhjálp er að benda á og það sem ÖBÍ er að benda á. Þess vegna skiptir svo miklu máli að tala við þá aðila sem hafa fagþekkingu á málaflokknum og þá sérstaklega notendur sem verða fyrir þessari nauðung. Það er fólkið sem er innan þessara samtaka eins og Geðhjálpar og ÖBÍ.
Nú hefur heilbrigðisráðherra einnig verið að vinna með frumvarp um réttindi sjúklinga og beitingu nauðungar innan heilbrigðiskerfisins. Heilbrigðisráðherra kallaði einmitt málið sitt til baka eftir 1. umræðu árið 2022 af því að bent var á að hann hefði ekki haft samráð við Geðhjálp, hann hefði ekki haft samráð við helstu hagaðila við samningu frumvarpsins. Hann hafði þá alla vega dómgreindina og vitið á því að kalla málið til baka og eiga þetta samráð.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hún við samningu þessa frumvarps verið í einhverju samtali eða samstarfi við heilbrigðisráðherra upp á að samræma hvernig stjórnvöld ætla að vinna að þessum málaflokki?