154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

lögræðislög.

925. mál
[18:32]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem beint er til mín. Ég vil ítreka að haft hefur verið víðtækt samráð hér. Árið 2022 voru áform um lagabreytingar, því hv. þingmaður vitnar hér í að langur tími sé liðinn frá 2015, sem þetta frumvarp byggir að hluta til á. Það er rétt. Það eru níu ár ef ég fer rétt með. Hins vegar voru áform um lagabreytingar kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 2. nóvember 2022. Það er eitt og hálft ár síðan. Þá bárust alls þrjár umsagnir. Það voru Landssamtökin Þroskahjálp, Reykjavíkurborg og ÖBÍ réttindasamtök. Þá eru lögð í samráðsgátt drög að frumvarpi 30. ágúst 2023. Þá berast 17 umsagnir. Helstu umsagnaraðilum og haghöfum var boðið að mæta á fund ráðuneytisins til að ræða málið nánar og af þessum 17 sem sendu umsagnir inn þá voru, að mér sýnist, sex sem þáðu það boð að koma og ræða þau frumvarpsdrög sem kynnt voru í samráðsgátt stjórnvalda.

Okkur sýnist sitt hverjum um þetta frumvarp og um þær aðferðir sem þarna eru taldar fram en eins og ég nefndi í máli mínu þá er hér verið að bregðast við athugasemdum frá umboðsmanni, frá eftirlitsaðilum sem hafa gagnrýnt það fyrirkomulag sem hér hefur verið og það er brýnt að bæta úr því.