lögræðislög.
Forseti. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Með lögum nr. 84/2015 voru samþykktar nokkrar breytingar á lögræðislögum, sem voru m.a. liður í fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
Áfram heldur svo, með leyfi forseta:
„Eftir gildistöku laga nr. 84/2015 hefur komið fram nokkur gagnrýni á gildandi lögræðislög þar sem því er m.a. haldið fram að umræddar breytingar hafi ekki gengið nægilega langt og að lögin séu enn ekki í fullu samræmi við þær kröfur sem leiða má af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
Í umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar, sem kom í samráðsgátt, er m.a. bent á að í 12. gr. téðs samnings sé talað um rétt fatlaðs fólks til jafnrar viðurkenningar fyrir lögum, m.a. rétt þeirra til að njóta löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.
Þá segir í umsögninni, með leyfi forseta:
„Því hefur verið haldið fram og mjög vel rökstutt að við þessa endurskoðun laganna hafi ekki tekist að færa lögin í það horf að þau uppfylltu kröfur sem leiða af samningnum. Landssamtökin Þroskahjálp taka heils hugar undir það. Samtökin skora á hlutaðeigandi stjórnvöld og Alþingi að að fara mjög gaumgæfilega yfir ákvæði lögræðislaga m.t.t. þeirra skyldna sem hvíla á íslenska ríkinu samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.“ — Og vísa sérstaklega til 12. gr. hans.
Í frumvarpi því sem við erum að skoða, bæði í 1. og 11. gr. þess, er að finna gríðarlega opnar heimildir til bæði frelsissviptingar og þvingaðrar meðferðar fólks, eingöngu vegna þess að það er veikt. Það eru heimildir þarna til þess að svipta fólk sjálfsákvörðunarrétti og frelsi, ekki vegna þess að það sé hættulegt sjálfu sér eða öðrum heldur einfaldlega vegna þess að það er veikt.
Mig langar til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Hvers vegna er skrefið ekki stigið til fulls? Hvers vegna þurfum við að halda áfram að brjóta á rétti veiks fólks til frelsis og mannvirðingar?