lögræðislög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég get ekki verið sammála því að hér sé verið að brjóta á réttindum fólks. Markmiðið með þessu frumvarpi er fyrst og síðast að tryggja betur réttarstöðu þess viðkvæma hóps sem lögin taka til og sníða ákvæði laganna um sviptingu lögræðis og nauðungarvistun betur að skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og skerpa síðan á ýmsum reglum er varða sviptingu lögræðis og hlutverk lögráðamanna o.s.frv.
Sú breyting hefur verið gerð að áhersla er lögð á mat á ástandi hvers einstaklings og þá hættu sem ástand hans getur skapað fyrir velferð hans sem og annarra. Ég vil ítreka að við erum að styrkja stöðu þessa viðkvæma hóps sem hér um ræðir — og þegar sýnt er fram á að vægari úrræði eru fullreynd.