lögræðislög.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hæstv. ráðherra talar hér um að markmiðið sé m.a. að sníða lögin betur að skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Spurning mín lýtur að því hvers vegna skrefið er ekki stigið til fulls, vegna þess að það er í rauninni verið að sníða það betur að því að lögfesta réttarbrot sem eiga sér stað, m.a. inni á geðdeildum landsins. Gefnar hafa verið út skýrslur og annað um það að á geðdeildum landsins fari fram brot á réttindum einstaklinga; þvinganir og nauðung sem er ekki lögleg. Viðbrögð löggjafans eru að skjóta lagastoð undir þá framkvæmd í stað þess að stöðva hana.
Hæstv. ráðherra talar um að þessum heimildum megi aðeins beita þegar vægari úrræði eru fullreynd. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Vægari úrræði til hvers? Þær heimildir sem eru í þessu frumvarpi krefjast þess ekki að einstaklingur sé hættulegur sjálfum sér eða öðrum. Þær krefjast þess einfaldlega að hann sé veikur. Það er heimilt samkvæmt þessu frumvarpi að frelsissvipta fólk og beita nauðung eingöngu vegna þess að það er veikt.
Mig langar til þess að spyrja hæstv. ráðherra að þessu annars vegar: Vægari úrræði fullreynd til hvers? Og svo vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvernig það styrkir stöðu fólks sem beitt er nauðung — sem margítrekaðar rannsóknir hafa sýnt fram á að verður fyrir meiri skaða við að vera beitt nauðung, það er ekki lækning fólgin í því að beita fólk nauðung heldur eykur það á veikindi þess ef eitthvað er — hvernig styrkir það stöðu þessara viðkvæmu einstaklinga, að skjóta lagastoð undir slíkar þvinganir frekar en að afnema þær?