lögræðislög.
Virðulegi forseti. Ég er algerlega ósammála hv. þingmanni um að hér sé verið að lögfesta brot — algjörlega. Ég ætla að ítreka það sem ég sagði áðan að hér erum við að bregðast við athugasemdum sem gerðar hafa verið af eftirlitsaðilum, eins og umboðsmanni Alþingis og öðrum, til að bregðast við þessari gagnrýni og styrkja réttarstöðu einstaklinga sem eru í viðkvæmri stöðu.
Hv. þingmaður spyr af hverju skrefið sé ekki stigið til fulls. Ég vil líka fá að benda á að ég hugsa að ekkert sé eins þungbært, fyrir aðstandendur og þá sem eru nákomnir fólki, og að þurfa að biðja um sjálfræðissviptingu eða lögræðissviptingu. Ég held að þau spor verði ekki þyngri. Og inngrip inn í líf manneskju verður ekki meira heldur en það. Þess vegna höfum við verið að vanda okkur við þetta frumvarp af öllum mætti. Það eru sett aukin skilyrði fyrir útgáfu læknisvottorðs með það að markmiði að tryggja betur réttaröryggi viðkomandi, að vottorð sem getur orðið grundvöllur fyrir nauðungarvistun þurfi að vera gefið út af lækni sem er óháður meðferð sjúklingsins þannig að hlutleysis verði gætt við mat á aðstæðum viðkomandi og nauðsyn vistunar.
Ég vil taka heils hugar undir það með hv. þingmanni að ég held að það sé tímabært að fara í heildarendurskoðun. En við þurfum að brúa bilið fram að þeirri vinnu (Forseti hringir.) og við getum ekki beðið með að fara í þær breytingar á lögræðislögum sem ég er hér að leggja til.