154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

lögræðislög.

925. mál
[18:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég finn mig knúna til að segja nokkur orð um það frumvarp sem við erum hér að ræða um breytingu á lögræðislögum sem varðar m.a. nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl. Þetta mál er mér mjög hugleikið þar sem ég hef frá því að ég settist á þing reynt að fá svör við því hvers vegna ekki sé gengið lengra af hálfu ríkisstjórnarinnar og ráðherra í að svara kalli um að binda enda á nauðung í geðheilbrigðisþjónustu. Líkt og kom fram í andsvari mínu við hæstv. ráðherra áðan, og hefur það reyndar ítrekað komið fram í þessari pontu, hafa verið gerðar athugasemdir við það að þvingunum og nauðung sé beitt á geðdeildum landsins og víðar án þess að fyrir því sé lagastoð. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið þau að leggja fram hvert frumvarpið á fætur öðru til að skjóta lagastoð undir þvinganir og nauðung í meðferð fólks með geðraskanir.

Það liggur fyrir að hér á landi er nauðung ítrekað beitt í geðheilbrigðisþjónustu. Skýringarnar á því eru iðulega þær að aðstæður bjóði einfaldlega ekki upp á að því verði hætt, að það sé ekki hægt að veita geðheilbrigðisþjónustu án þvingana. Þetta er auðvitað vandamálið sem við stöndum frammi fyrir. En hvers vegna er það ekki hægt? Vegna þess að aðstæður þær sem starfsfólk í heilbrigðisþjónustu býr við, bæði húsakostur, fjármagn, mannafli og annað, gera það að verkum að ekki er hægt að veita fólki viðhlítandi aðstoð. Það er staðan. Við leysum það ekki með því að setja í lög frekari heimildir til að beita fólk þvingunum.

Á meðan við stöndum hérna og ræðum þetta mál í hundraðasta skipti þurfa berskjaldaðir einstaklingar í ofanálag við þann veruleika sem veikindi þeirra búa þeim að sæta þvingunum, gaslýsingu, nauðung og ofbeldi vegna veikinda sinna einna saman, ekki vegna þess að af þeim stafi hætta, hvorki þeim sjálfum né öðrum, hvorki manneskjum né munum, heldur vegna þess eins að þau eru veik. Það er hugsað þannig að það sé þeim fyrir bestu. Þetta er auðvitað grafalvarleg staða. Rannsóknir sýna að beiting þvingunar við meðferð geðraskana hefur alvarlegar neikvæðar afleiðingar fyrir þá einstaklinga sem beittir eru henni. Meðferð gegn vilja viðkomandi, svo sem þvinguð lyfjagjöf, er talin sérstaklega skaðleg andlegri velferð einstaklings, sérstaklega skaðleg. En er það ekki einmitt andleg velferð einstaklings sem geðheilbrigðisþjónusta á að ganga út á; að lækna, ekki lama? Þá hefur verið bent á það að beiting nauðungar í geðheilbrigðisþjónustu hafi jafnvel fælandi áhrif á fólk sem þurfi á aðstoð að halda, sem forðist réttilega að leita hennar af ótta við að verða beitt slíkri nauðung.

Fyrir flest okkar er erfitt að gera sér í hugarlund þá reynslu að vera svipt sjálfræði, að vera svipt völdum yfir eigin lífi, vera vistuð á stofnun og beitt nauðung, hvað þá að vera neydd til lyfjagjafar, að ráða ekki yfir eigin lífi og líkama. Samt er þetta raunveruleikinn fyrir fjölda einstaklinga á ári hér á landi sem eru svipt lögræði eða sjálfræði. Þvingun og valdbeiting eru alltaf ofbeldi. Í einhverjum tilvikum kann það að virðast nauðsynlegt en því getur einnig fylgt meira ofbeldi, brot á mannhelgi og lífsgæðaskerðing. Afleiðingar sjálfræðissviptingar eru óöryggi, kvíði, þunglyndiseinkenni og einangrun. Þá bera sjúklingar því við sem hafa orðið fyrir þvingaðri lyfjagjöf, þvingaðri meðferð og öðru að þau missi trú á sjálf sig, missi trú á að þau hafi yfir höfuð stjórn á eigin lífi og eigin líkama, hætti jafnvel að reyna að hafa stjórn á eigin lífi og eigin líkama.

Í skýrslu sem kom út á vegum þings Evrópuráðsins fyrir örfáum misserum kemur fram að beiting nauðungar og annarra þvingunarúrræða í geðheilbrigðismálum fari vaxandi í Evrópu með aukinni löggjöf um beitingu nauðungar, sem einmitt, líkt og hæstv. ráðherra segir, er ætlað að setja ramma utan um beitingu nauðungar. En beiting nauðungar og annarra þvingunarúrræða fer vaxandi, ekki minnkandi. Kemur fram í skýrslunni að breytingar á löggjöf sem ætlað er að draga úr slíkri nauðung en heimila hana hafi ekki tilskilin áhrif í framkvæmd. Orsökin er rakin til viðhorfa og menningar sem reiða sig á stjórnun og meðferð einstaklinga sem taldir eru hugsanlega hættulegir sjálfum sér eða öðrum. Við erum ekki einu sinni að tala um það í þessu frumvarpi. Þar með er gjarnan vísað til hættu á ofbeldi af hálfu þessara einstaklinga og er það ríkjandi réttlæting fyrir valdbeitingu í geðheilbrigðismálum þrátt fyrir að rannsóknir hafi hvorki leitt í ljós sérstök tengsl á milli geðraskana og ofbeldis né hefur verið sýnt fram á gagnsemi valdbeitingar til að koma í veg fyrir að fólk valdi sjálfu sér eða öðrum skaða. Þvert á móti hafa félagslegar rannsóknir leitt í ljós að beiting þvingunar við meðferð geðraskana hefur verulega neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklinga sem beittir eru slíku valdi og hef ég nú lesið hverja bókina á fætur annarri sem einstaklingar hafa skrifað um reynslu sína af því að hafa verið beittir viðlíka þvingun. Eitt sem ég verð að taka undir með hæstv. ráðherra er að það er skelfileg staða sem aðstandendur eru settir í, að vera samkvæmt lögum gerðir að þeim einstaklingi sem á að krefjast lögræðis- eða sjálfræðissviptingar, en auðvitað eru ráðþrota fjölskyldumeðlimir ekki í neinni stöðu til að taka slíka ákvörðun eða meta það. Auðvitað eru það mikil mistök en ekki er þar með sagt að það eigi að setja það í hendur einhvers annars aðila að beita fólk þvingunum og nauðung. Það er ekki lausnin.

Í kjölfar þessarar skýrslu sem kom út á vegum Evrópuráðsþingsins ályktaði þingið að geðheilbrigðiskerfi í Evrópu þurfi að endurhugsa m.a. út frá alþjóðlegum skuldbindingum aðildarríkjanna, svo sem samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það þurfi að endurhugsa geðheilbrigðiskerfin í samræmi við siðfræði lækninga og virðingu fyrir mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti fólks til að þiggja meðferð eða hafna henni. Í skýrslunni er ekki eingöngu farið fram á það að ríki hætti að beita fólk nauðung, að bundinn verði endi á nauðung en ekki settur rammi utan um hana, heldur er í skýrslunni farið yfir ýmsar leiðir sem hægt er að fara til þess að koma alfarið í veg fyrir að beita þurfi nauðung gagnvart fólki með geðraskanir. Á meðal skrefa sem lagt er til að ríkið taki í þá átt er að þróa framtíðarsýn um róttæka fækkun tilfella þar sem nauðung er beitt, ekki eingöngu ramma og að leitast við og annað, heldur að róttæk fækkun tilfella þar sem nauðung er beitt sé stefnan og henni sé viðhaldið í samstarfi við hlutaðeigandi, þá sérstaklega einstaklinga með geðraskanir og þjónustuveitendur. Lagt er til að ríkin þrói áhrifaríka og aðgengilega stuðningsþjónustu fyrir einstaklinga í andlegum erfiðleikum, þar á meðal örugg og stuðningsrík úrræði til að ræða hugsanir um sjálfsskaða og sjálfsvíg, þróa og fjármagna rannsóknir á úrræðum án þvingunar og setja fjármagn í forvarnir og snemmtæka greiningu geðraskana og snemmtæk úrræði án þvingunar, sér í lagi fyrir börn og ungt fólk, án fordóma. Af einhverjum ástæðum er þetta orðalag sett inn. Ríki þurfa að berjast gegn staðalímyndum um fólk með geðraskanir og þeirri röngu narratífu um ofbeldi fólks með geðraskanir með vitundarvakningu og þátttöku allra sem hafa aðkomu að slíkum málum. Endurskoða þarf námskrá á öllum námsstigum með það fyrir augum að tryggja að hún sé í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, berjast gegn útilokun og útskúfun fólks með geðraskanir með því að tryggja því aðgang að viðeigandi félagslegri þjónustu, húsnæði og atvinnu. Þá þarf að veita aðstandendum fólks með geðraskanir bæði félagslegan og fjárhagslegan stuðning til að koma til móts við álag og áskoranir sem fylgja úrræðaleysi fyrir fólk með geðraskanir.

Þetta frumvarp sem við ræðum hér er tímaskekkja. Ég ætla að leyfa mér að grípa niður í umsögn Geðhjálpar við drög að frumvarpinu sem lögð voru fram í samráðsgátt. Orðalagi frumvarpsins hefur verið örlítið breytt áður en það kom til þingsins eftir það var birt í samráðsgátt en þó ekki þannig að það samræmist athugasemdum Geðhjálpar. Geðhjálp segir m.a. í sinni umsögn, með leyfi forseta:

„Lögræðislögin sem hér eru til umfjöllunar bera þess merki að hlustað hafi verið um of á sjónarmið þjónustuveitenda á kostnað þjónustunotenda.“

Geðhjálp bendir á að þær tillögur sem eru gerðar í frumvarpinu séu endurtekning á ákvæðum gildandi laga sem byggja á sjónarmiðum og gildum sem eru á undanhaldi, með öðrum orðum úrelt. Landssamtökin Geðhjálp eru mótfallin lögræðissviptingu nema í undantekningartilfellum þegar fólk hefur brotið gegn hegningarlögum. Það þarf að frelsissvipta það af þeim sökum, það á ekki að frelsissvipta fólk vegna þess að það er veikt, enda stríðir það gegn samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá gerir Geðhjálp athugasemdir við að það geti verið undir áliti eins læknis komið hvort einstaklingur teljist hættulegur sjálfum sér eða öðrum.

Það sem ég persónulega upplifi mest stuðandi í þessu máli eru þvingaðar lyfjagjafir. Landssamtökin Geðhjálp eru mótfallin hvers kyns þvinguðum lyfjagjöfum en eins og við vitum þá fara þvingaðar lyfjagjafir fram hér á landi án þess að fyrir því sé einu sinni lagaheimild. Hins vegar hefur hvorki ríkisstjórnin né hæstv. ráðherra, hvorki hæstv. dómsmálaráðherra né hæstv. heilbrigðisráðherra, gert nokkuð til að stöðva ólögmæta framkvæmd á stofnunum landsins, þótt ekki sé nema á meðan verið er að vinna að því að gera þvinganirnar löglegar. Við OPCAT-eftirlit umboðsmanns Alþingis á síðastliðnum árum hefur komið fram að lagaheimildir hafi skort til að beita þvingandi aðgerðum sem beitt er nú þegar. Þrátt fyrir þessar ítrekuðu ábendingar umboðsmanns hefur lögum ekki verið breytt og þvingun og nauðung er áfram beitt á geðdeildum og stofnunum landsins.

Ég ætla að lesa aftur upp úr umsögn Geðhjálpar, með leyfi forseta:

„Landssamtökin Geðhjálp hafa lagst gegn tilraunum löggjafans til að víkka heimildir framkvæmdarvaldsins til að beita borgarana nauðung og þvingunum. Á meðan geðdeildir landsins eru undirmannaðar, starfsmannaveltan veruleg, skortur á fagfólki viðvarandi, hugmyndafræðin sem notast er við gamaldags, samræmd skráning atvika ekki fyrir hendi og eftirlit með starfseminni nær ekkert, þá verða framfarir innan geðheilbrigðiskerfisins litlar sem engar. Í stað þess að fara í enn einn bútasauminn á lögræðislögunum og lögum um réttindi sjúklinga eiga stjórnvöld að ráðast í róttækar breytingar á geðheilbrigðiskerfinu öllu og miða hugmyndafræði meðferðar við framsæknustu hugmyndirnar og gera geðheilbrigði að forgangsmáli í samfélaginu.“

Ég ætla að láta staðar numið hér í þessari umræðu. Við munum halda áfram að ræða þetta mál hér á þinginu. Ég vona þó frekar að hæstv. ríkisstjórn taki þetta mál aftur til skoðunar í ljósi þeirra athugasemda sem hafa borist. Það er ekki í lagi að árið 2024 sé verið að frelsissvipta fólk, svipta það sjálfsákvörðunarrétti eingöngu vegna þess að það er veikt.