staða ríkisfjármála.
Forseti. Hæstv. forsætisráðherra. Það eru efnahagsmálin númer eitt, tvö og þrjú sem þessi ríkisstjórn hefur sett á hvolf og arfleifð hennar verður því miður óstjórn og óstöðugleiki í efnahagsmálum. Þess vegna furðaði fólkið sig í landinu á því að það væru ekki boðaðar neinar breytingar í raun við stjórn efnahagsmála ríkisstjórnarinnar við síðustu stólaskipti, breytingar sem skiluðu meiri árangri fyrir land og þjóð. Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum, og hvað segja tölurnar? Eitt ár af vöxtum yfir 9%, fjögurra ára verðbólga yfir markmiði, níu ára mínusvextir hjá ríkissjóði frá 2019–2027. Er hæstv. forsætisráðherra ánægður með þessar tölur? Við skulum bara tala hreina íslensku hérna: Ríkisfjármálin eru í ruglinu og hafa verið það árum saman, ósjálfbær og verðbólguvaldandi og þetta vita allir.
Peningastefnunefnd Seðlabankans bendir á áhrif ríkisfjármála á eftirspurn núna síðast í morgun. Fjármálaráð ríkisins, sem er óháð ráð sérfræðinga um ríkisfjármál, segir í áliti um nýja fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, með leyfi forseta:
„Stöðvun ófjármagnaðra útgjalda og/eða aukin tekjuöflun eru forsenda þess að markmið um stöðugleika og sjálfbærni, þ.m.t. lækkun verðbólgu og vaxta, gangi eftir.“
Samfylkingin hefur bent á þetta allt kjörtímabilið, aftur og aftur, hér á Alþingi en ríkisstjórnin hefur látið sér fátt um finnast og haldið áfram að vera þenslu- og verðbólguvaldur númer eitt á Íslandi. Svona blasir þetta við núna. Samfylkingin er flokkur ábyrgra ríkisfjármála og efnahagslegs stöðugleika. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt skilið við öll prinsipp um ábyrg ríkisfjármál. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Er hann ánægður með tölurnar eins og þær birtast núna, vextina, verðbólguna og síðast en ekki síst níu ára hallarekstur á ríkissjóði? Er þetta það sem Sjálfstæðisflokkurinn kallar ráðdeild í ríkisfjármálum?