staða ríkisfjármála.
Virðulegi forseti. Hér var löng buna af fullyrðingum sem fæstar standast nokkra skoðun. Efnahagsástandið á hvolf, segir hv. þingmaður. Við erum með meiri hagvöxt en nágrannaríkin. Hér er atvinnustig sterkt. Hér hefur verið vaxandi kaupmáttur heimilanna ár eftir ár. Við erum með fjögurra ára kjarasamninga í fyrsta skipti í langan tíma. Skuldastaða ríkissjóðs er hófleg. Fjármálaráð segir að á margan hátt sé staðan á Íslandi sterk í alþjóðlegum samanburði. Við erum með skuldir ríkissjóðs lágar, eins og ég segi, í alþjóðlegum samanburði. En það sem meiru skiptir er að síðastliðin tíu ár höfum við notað til að standa með heimilunum þannig að skuldastaða heimilanna hefur sjaldan í lýðveldissögunni verið sterkari. Skuldastaða atvinnustarfseminnar er líka hófleg. Hér er gríðarlega mikil nýsköpun og vöxtur í hagkerfinu. Við sjáum fram á gríðarlegan vöxt í landeldi. Við sjáum alþjóðleg fyrirtæki á borð við Alvotech og Kerecis verða til og segja Ísland draumaland nýsköpunarmanna. Hvert dæmið á eftir öðru rekur sig um það að við erum að gera betur heldur en nágrannalöndin og háa vaxtastigið sem hv. þingmaður vísar til er ekki til vitnis um það að hér séu efnahagsmálin á hvolfi. Það er hins vegar til vitnis um það að hér sé enn of mikil spenna og það er áhyggjuefni. Það er áhyggjuefni að við séum með þetta háa vexti þegar verðbólgan er 6% og á samræmdan mælikvarða komin niður í 3,9%. En sem betur fer sáum við, eftir ákvörðun Seðlabankans í morgun, að markaðirnir trúa því, með því að ávöxtunarkrafan er að breytast, að við munum ná tökum á ástandinu. Og auðvitað mun ríkisstjórnin leggja mikla áherslu á að við verðum að ná tökum á verðbólgunni svo að vextir muni lækka. Það er forgangsmál og verður áfram forgangsmál.
Okkur hefur gengið vel að standa með heimilum og fyrirtækjum. Um það vitnar árangur síðustu tíu ára sem hefur tryggt Ísland í bestu efnahagslegu stöðu í lýðveldissögunni. Eða hvaða dæmi ætlar hv. þingmaður annars að nefna um ár þar sem Ísland stóð betur heldur en árið 2024?