154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

Velferð dýra og eftirlit MAST.

[15:11]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég vitna hér í orð Steinunnar Árnadóttur sem hefur vakið athygli á illri meðferð sauðfjár í Borgarfirði, með leyfi forseta:

„Engin orð geta lýst þessum hryllingi: Lamb fast í gaddavír. Nýborin kind við veginn. Horaðar kindur og enn horaðri. Lömb í kryppu af kulda. Lömb með heiftarlega skitu. Lamb stíflað um endaþarm, lifir ekki af þann hrylling. Móðir yfir dauðu lambi sínu. […] Er hægt að misbjóða skepnum meira?“

Í 5. gr. reglugerðar um velferð sauðfjár segir: Bannað er að beita sauðfé illri meðferð. Tryggja skal velferð allra dýra með því að líta reglulega til með þeim og bæta úr því sem ábótavant er. Sérstakt og tíðara eftirlit skal haft með nýfæddum lömbum og sjúku og slösuðu fé. Sama á við um ær sem eru komnar nálægt burði.

Og svo ég vitni áfram í orð Steinunnar Árnadóttur, með leyfi forseta:

„„Þú þarft að hafa húsakost til að geta hýst féð, eins og sýnist núna í verstu veðrum sem er hægt að hugsa sér í fjárbúskap,“ segir Steinunn um húsin sem rúmi aðeins um þrjú hundruð kindur af þeim þrettán hundruð kindum bæjarins.“

Í 14. gr. reglugerðar um velferð sauðfjár segir að öllu sauðfé skuli tryggt nægjanlegt húsaskjól og vetrarlangt.

Þetta fé er alveg eftirlitslaust og þegar kemur að sauðburði er féð að bera úti um hvippinn og hvappinn og það er ekkert verið að hugsa um lömbin sem lifa ekki af. Þú passar þig þegar þú keyrir þarna fram hjá, passar þig að að líta ekki til hliðar því að þú gætir séð kind sem hefur ekki getað borið og hrafninn er búinn að éta lambið og hana.

Ég ítreka aftur 5. gr. reglugerðarinnar: Tryggja skal velferð allra dýra með því að líta reglulega til með þeim og bæta úr því sem ábótavant er. Sérstakt og tíðara eftirlit skal haft með nýfæddu, sjúku og slösuðu fé. Sama á við um ær nálægt burði.

Þessi reglugerð er þverbrotin en Matvælastofnun aðhefst ekkert. Líkt og fjallað var um í skýrslu Ríkisendurskoðunar í fyrra er nálgun MAST, Matvælastofnunar, vegna eftirlits með sauðfé í sumum tilfellum svo varfærnisleg að hún gengur í raun gegn markmiðum laga um velferð dýra.

Ætlar hæstv. matvælaráðherra, sem ber ábyrgð á allri dýravelferð í landinu, að sjá til þess (Forseti hringir.) að undirstofnun hennar, Matvælastofnun, fari að sinna verkum sínum og fari í rauninni að gera það að verkum að þessum dýrum (Forseti hringir.) verði komið til bjargar?