Velferð dýra og eftirlit MAST.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það gleður mig mjög mikið ef hún ætlar að taka utan um málaflokkinn af sinni góðmennsku. En hins vegar er staðan sú — ég nefndi nú ekki nafnið á þessum bæ sem hér er um rætt — að í 15 ár hefur verið kallað eftir aðgerðum hvað lýtur að illri meðferð á sauðfé hvað þennan bæ varðar. 15 ár. Þannig að ég segi: Það er gott og blessað að koma með hópa sem ætla að taka út hlutina og reyna að bæta úr þeim en eins og staðan er í dag þá er þetta sauðfé að drepast nákvæmlega þarna núna; mynd af nýborinni á í gær sem er öll í keng, lekur úr henni þvagið, í henni er föst fylgjan og hún er að drepast. Hún er að reyna að berjast við að gefa lambinu sínu að drekka. Þetta er vitað og það er nákvæmlega þannig að sama hversu oft er haft samband við Matvælastofnun varðandi þetta tiltekna býli þá eru engar aðgerðir í kortunum, engar. Þannig að ég spyr aftur hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Verður ekki stundum neyðin það stór og mikil að við þurfum að grípa til aðgerða strax til að hjálpa því sem hjálpað verður?