Velferð dýra og eftirlit MAST.
Virðulegi forseti. Ég vildi bara kannski ítreka þetta, að styrkja stjórnsýsluna þannig að tæki og tól sem eftirlitsstofnun hefur séu þess eðlis að hún geti gripið inn í með miklu skýrari hætti heldur en er í dag og þess vegna ítreka ég líka að ég er ekki að tala um að þetta taki einhver mörg ár eða langan tíma eða eitthvað. Ég vil að þessi vinna inni í ráðuneytinu verði dálítið snörp. Eins og við þekkjum er gjarnan talað um spretthópa, ég ætla ekki að halda því fram að það verði spretthópur því ég vil gera þetta stærra og dýpra og ekki eitthvað sem verður bara í formi þess að vera hópur, jafnvel að búa til stærra utanumhald um það.
En svo verð ég líka að minna á það að fólk sem kemur að svona — þó að ég sé ekki að yfirfæra ábyrgðina frá eftirlitsstofnunum yfir á almenning þá ber okkur öllum skylda, eigum við þess kost, að hjálpa bæði dýrum og mannfólki ef við verðum þess áskynja að illa er fyrir komið. Þannig að ég vil bara ítreka það líka að (Forseti hringir.) auðvitað ber að tilkynna til lögreglu, eins og kannski hefur verið gert í einhverjum tilfellum, ég tjái mig ekki um einstök mál, (Forseti hringir.) en þá er bara mikilvægt að allir þeir sem geta hreyft við eða hjálpað skepnunum geri það.