áætlun stjórnvalda og lækkun stýrivaxta.
Virðulegi forseti. Miklar verðbólguvæntingar, áframhaldandi spenna í hagkerfinu og ótrúverðug fjármálaáætlun eru helstu ástæður þess að Seðlabankinn tók þá ákvörðun í morgun að lækka ekki meginvexti sína. Seðlabankastjóri var skýr í þeirri afstöðu sinni að forsenda vaxtalækkana væri að ná verðbólgunni niður. Forsendur kjarasamninga eru auðvitað þar undir líka. Það er því mikið í húfi fyrir íslensku þjóðina að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fari nú að koma sér að verki. Ríkisstjórnin er pínulítið eins og Don Kíkóti í baráttu sinni við vindmyllurnar; baráttan er hvorki markviss né raunsæ. Mér finnst blasa við ákveðin afneitun og skortur á raunveruleikatengingu þegar kemur að heimilum landsins. Það er alveg augljóst í mínum huga að það eru greinilega fáir ráðherrar við ríkisstjórnarborðið sem þekkja einhverja sem standa frammi fyrir mjög íþyngjandi húsnæðislánum og húsnæðisskuldbindingum. En staðan er samt sú, þrátt fyrir að ríkisstjórnin hefði lýst því strax yfir að forgangsverkefnið væri að ná tökum á verðbólgunni, að baráttan gengur ekki sérlega vel. Enda treysti seðlabankastjóri sér ekki til að lækka vexti og auðvitað bitnar það á heimilum landsins og litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Við skulum líka draga fram fjármálaráð sem hefur sagt það og undirstrikað mjög skýrt: Þetta er ótrúverðug fjármálaáætlun. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir það sama og algerlega óljóst hvert fjármálaáætlun stefnir. Þannig að það eru mjög margir sammála því að þetta er ótrúverðug staða sem blasir við í dag og það eru ekki síst heimilin í landinu sem blæða fyrir. Gleymum því heldur ekki að Sjálfstæðisflokkurinn blessaði auglýsti að hann hefði tryggt lægstu vexti í sögunni fyrir síðustu kosningar (Gripið fram í.) en það stórmerkilega lágvaxtatímabil var eins og meðgöngutími músa, u.þ.b. 20–30 dagar ef hæstv. forsætisráðherra veit það ekki.
Ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvenær hann hyggist leggja fram trúverðugt plan (Forseti hringir.) fyrir þjóðina en ekki síður fyrir Seðlabankann þannig að Seðlabankinn geti raunverulega (Forseti hringir.) byrjað að lækka vexti. Og ég vil spyrja: Af hverju í ósköpunum var ekki ráðist í umfangsmeiri aðgerðir til að styðja einmitt við verðbólgumarkmið Seðlabankans? Þetta er ekkert (Forseti hringir.) að ganga. Hvenær fáum við raunverulega að sjá planið?