áætlun stjórnvalda og lækkun stýrivaxta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, svo sem sami söngur og hefur verið býsna lengi. Það er rétt að stýrivextir Seðlabankans hafa verið býsna háir og við höfum líka séð að verðbólga hefur verið há þó að hún hafi farið verulega lækkandi núna á liðnum mánuðum, um rúm 3% frá því að hún var hvað hæst og er komin niður í 6%. Við höfum líka séð að verðbólga sums staðar erlendis hefur farið hraðar niður og við þekkjum það hérlendis að verðbólga getur verið viðvarandi. Það gengur auðvitað ekki að stjórnarandstaðan komi upp með sama sönginn og þau komu með síðast. Þau sögðu að þá hefði skort á að fjármálaáætlun hefði verið komin fram. Nú er hún komin fram og það er ekki verið að tala um það. Nú þurfum við að bíða eftir rökstuðningi peningastefnunefndar á morgun en í yfirlýsingunni í dag er augljóslega mun mildari tón að heyra og augljóst að menn vilja sjá frekari teikn um að árangur af fjögurra ára kjarasamningi á almennum markaði fari að skila sér, að við förum að sjá fleiri jákvæð teikn um samninga eins og voru gerðir í gær til fjögurra ára á opinbera markaðnum.
Fjármálaáætlun sýnir fram á hófsaman útgjaldavöxt. Það er rétt hjá hv. þingmanni að í fjármálaráði er fjallað um að það sé ekki nægur trúverðugleiki yfir hlutum sem gerast hér langt inni í framtíðinni í fjármálaáætlun, sem ég verð að segja að mér finnst vera sérkennilegt þegar verið er að tala um aðhald upp á einhverja 9 milljarða. Við gerðum það í fjárlögum í fyrra og við munum gera það í fjárlögum þessa árs. Hvað gerist árið 2028 nákvæmlega tiltekið mun auðvitað koma í ljós og mér finnst ekki hægt að halda því fram (Forseti hringir.) að það sé skortur á trúverðugleika hjá núverandi ríkisstjórn vegna þess að hún hafi ekki listað það nákvæmlega upp, sérstaklega í ljósi þess sem við höfum séð á síðustu árum, (Forseti hringir.) að tekjur hafa verið umtalsvert meiri. En nú verðum við að fara varlega vegna þess að þær eru augljóslega að fara niður.