154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

áætlun stjórnvalda og lækkun stýrivaxta.

[15:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er engin nýlunda að ráðherrar í þessari ríkisstjórn skjóti reglulega sendiboðann og það er alveg hárrétt að Viðreisn er með sama sönginn og við erum búin að tala um og vara við þessu mjög lengi, allt frá árinu 2018. Þá vorum við hér með rauðu flöggin og sögðum: Passið ykkur, ríkissjóður er ósjálfbær. Þetta var löngu fyrir Covid. En síðan kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Síðan kemur Seðlabankinn og síðan kemur fjármálaráð og það er ekkert að marka þessa aðila sem ítrekað segja það sama: Þetta er ótrúverðug fjármálaáætlun og þið verðið að fara að gera eitthvað í þessu. Þess vegna erum við að biðja um planið. Við erum einfaldlega að segja: Takið þið ákvarðanir. Það versta sem gerist og hefur gerst núna á umliðnum árum hjá þessari ríkisstjórn er að það er ekki verið að taka ákvarðanir. Við þekkjum þetta í orkumálum og alls konar málaflokkum en ekki síst núna þegar kemur að fjármálum ríkisins. Í tíu ár mun þessi ríkisstjórn, núna undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hafa skilað halla á ríkissjóði — í tíu ár. Svo eru þessir ráðherrar að fagna rosalega glaðir (Forseti hringir.) 6% verðbólgu. Hvers konar metnaðarleysi er þetta? Þess vegna spyrjum við einlægt í Viðreisn, (Forseti hringir.) því að við viljum styðja ríkisstjórnina í því að ná tökum á fjármálum þannig að við getum farið leyfa Seðlabankanum (Forseti hringir.) að lækka vexti og hafa svigrúm til þess: Hvert er planið? Það er mjög óljóst. En ekki skjóta sendiboðann.