154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

viðbrögð stjórnvalda við framgöngu Ísraelsmanna í Rafah.

[15:29]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og deili með henni því sem hún endaði á, að Ísland eigi allt undir því að alþjóðakerfi haldi, að mannúðar- og alþjóðalög séu virt. Alþjóðasamfélagið, og þ.m.t. svona dyggustu stuðningsmenn Ísraels, hefur mjög eindregið undanfarið hvatt stjórnvöld Ísraels til að láta ekki verða af áætlunum sínum um allsherjarhernaðaraðgerðir í Rafah þar sem milljónir almennra borgara dvelja nú vegna þeirra miklu stríðsátaka sem geisað hafa annars staðar á Gaza. Þar á meðal hafa bandarísk stjórnvöld þráfaldlega beðið stjórnvöld í Ísrael um að ráðast ekki á Rafah. Ég deili því með hv. þingmanni sem rétt er að þar dvelur fólk við ömurlegar aðstæður í skjóli af því að það hefur þurft að flýja og það er ekki hægt að segja við það fólk að það eigi að flýja eitthvert annað vegna þess að það kemst ekkert annað. Það hefur verið algerlega skýrt af hálfu alþjóðasamfélagsins, nágrannaríkja Ísraels og Palestínu og helstu stuðningsmanna Ísraels sömuleiðis, að brottflutningur Palestínumanna af Gaza komi ekki til greina. Allsherjarhernaðarárás á Rafah er þess vegna óhugsandi, bæði vegna þeirra blóðsúthellinga sem hún myndi valda meðal almennra borgara og vegna þess þrýstings sem hún myndi valda um að Palestínumenn yfirgefi landið sitt. Við höfum hér, íslensk stjórnvöld, komið þessum skilaboðum á framfæri við ísraelsk stjórnvöld. Við munum halda því áfram. Við höfum aukið við mannúðaraðstoð inn á svæðið. Það er varla hægt að hugsa það til enda ef það verður lokað algjörlega á það. Við höfum leitað leiða til að koma aðstoð á staðinn. Við höfum talað innan bæði Sameinuðu þjóðanna, með yfirlýsingum og í samtölum. Það sem við getum gert og það sem hér skiptir máli (Forseti hringir.) er að segja hátt og skýrt alls staðar að það er aldrei hægt að réttlæta það að ekki sé hægt að koma mannúðaraðstoð inn á svæði þar sem mannúðaraðstoðar er þörf (Forseti hringir.) og við eigum ekki erfitt með að koma því skýrt á framfæri.