154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

viðbrögð stjórnvalda við framgöngu Ísraelsmanna í Rafah.

[15:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Okkar bandaþjóðir hafa hvatt Ísrael til að ráðast ekki á Rafah, hafa hvatt Ísrael til að hætta stöðugum drápum á börnum og öðrum borgurum. Ætlum við líka að hvetja Ísrael til að stöðva þjóðarmorðið eða ætlum við að gera allt sem í okkar valdi stendur? Mig langar til að ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Hvað ætlar hún að gera í þessari stöðu sem komin er upp þar sem við erum með ríki sem okkar bandamenn styðja með bæði orðum og gögnum og fjármunum í sínu þjóðarmorði? Hvað ætlum við að gera til að stöðva þetta? Hvað ætlar íslenska ríkisstjórnin að gera? Við erum að horfa upp á ríki sem meðvitað og með meðvitund alþjóðasamfélagsins, með meðvitund íslensku ríkisstjórnarinnar, þverbrýtur alþjóðalög, þverbrýtur öll tilmæli, er alveg sama um allt sem er sagt. (Forseti hringir.) Ættu hvatningar að skipta máli þegar úrskurður Alþjóðadómstólsins skiptir það ekki einu sinni máli? Hvað ætlar íslenska ríkisstjórnin að gera?