orð ráðherra um valdheimildir ríkislögreglustjóra .
Forseti. Við þurfum að spyrja um afleiðingar. Nýlega féll dómur Hæstaréttar þar sem fram kom að Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, hefði hækkað lífeyrisréttindi lítils hóps yfirmanna við embættið um 55% án þess að hafa til þess heimild. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að þessi ákvörðun hefði verið tekin einhliða af hans hálfu og að aðrir lögreglumenn hefðu ekki átt kost á stórbættum lífeyrisréttindum. Haraldur Johannessen hafi því brotið gegn jafnræði lögreglumanna jafnt við embætti ríkislögreglustjóra og önnur lögregluembætti og því var um ólögmæta ákvörðun að ræða.
Málið snerist um það hvort þessi litli hópur sem naut góðs af þessari ólögmætu ákvörðun gæti með réttu krafist þess af ríkissjóði að staðið yrði við þessa ólögmætu ákvörðun gagnvart honum. Þar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ekki þætti sannað að þessi litli hópur hefði með réttu getað vitað að Haraldur hefði ekki haft heimild til að færa þeim þessa lífeyrisgjöf og taldi Hæstiréttur m.a. að þar hefðu ummæli núverandi hæstv. forsætisráðherra, þáverandi fjármálaráðherra, vegið þungt en hann sagði stuttu eftir að þetta mál komst í hámæli, með leyfi forseta:
„Í þessu tilviki er það mat okkar í fjármálaráðuneytinu að menn hafi verið innan heimilda til að gera þær breytingar á starfskjörum sem um er fjallað í svarinu. […] Hér hafa menn komist að þeirri niðurstöðu að í þessu tiltekna embætti hafi menn haft heimildir til að ganga frá þessari útfærslu samninga. Það verður bara að meta hverju sinni.“
Svar ráðherrans var miklu afdráttarlausara en skriflegt svar ráðuneytisins á þeim tíma sem tók fram að forstjórar ríkisstofnana hefðu ekki frjálsar hendur við að ákveða hvaða ríkisstarfsmenn fái notið betri lífeyrisréttinda. Því vil ég spyrja hvernig hæstv. ráðherra líður með að hafa átt stóran þátt í því að ríkissjóður situr uppi núna með reikning upp á hálfan milljarð vegna ólögmætrar ákvörðunar sem hann blessaði.