orð ráðherra um valdheimildir ríkislögreglustjóra.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja alveg eins og er að mér þykir nú býsna langt seilst í þessari fyrirspurn þegar orðaskipti eiga sér hér stað í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi og til grundvallar samtali sem fer hér fram liggur fyrir skriflegt svar ráðuneytisins, að þá komust menn að þeirri niðurstöðu, jafnvel þótt Hæstiréttur hafi vísað til þess að visst ósamræmi hafi verið milli þess sem féll hér í munnlegum fyrirspurnatíma, óundirbúnum, og þess sem sagði í skriflegu svari ráðuneytisins, að það sé á endanum bara á mína ábyrgð allt það sem þáverandi lögreglustjóri gerði. Þetta er náttúrlega orðin slík þvæla að ég eiginlega get ekki tekið þessu alvarlega. Hins vegar er það mjög til umhugsunar þegar menn fara út fyrir valdheimildir sínar og eru í raun og veru í algjörri valdþurrð að taka ákvarðanir að þær á endanum engu að síður þyki eiga að standa. Það er auðvitað mjög til umhugsunar. En við sitjum uppi með þá niðurstöðu æðsta dómstóls landsins og verðum að lifa með því.