154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

orð ráðherra um valdheimildir ríkislögreglustjóra.

[15:38]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Já, það er nefnilega þannig að orð ráðherra skipta máli. Orð ráðherra vega þungt enda segir alveg mjög skýrt í 83. gr. efnisgrein dómsins, með leyfi forseta:

„Fyrir liggur að ekki er fullt samræmi milli hins skriflega svars ráðuneytisins og þessara ummæla ráðherra í umræðum á Alþingi. Sú krafa varð á hinn bóginn ekki gerð að stefndi kynnti sér sérstaklega hin skriflegu svör og bæri þau eftir atvikum saman við afdráttarlausar yfirlýsingar ráðherrans. Enn hlutu viðbrögð æðstu ráðamanna, tæpu hálfu ári eftir gerð samkomulagsins, að styrkja þá trú stefnda að formlegar og efnislegar heimildir hefðu verið til staðar til að skuldbinda áfrýjendur til að standa við umræddar kjarabætur.“

Þarna eru það orð ráðherra sem skipta máli. Við hljótum að bera ákveðna virðingu fyrir því að orð ráðherra skipta máli. Þetta er valdamesta fólkið í okkar samfélagi. Og með tilliti til þess þá verður maður að velta fyrir sér hverjar afleiðingarnar (Forseti hringir.) eigi að vera. Verða frekari eftirmálar út af þessari ólögmætu ákvörðun til að byrja með? Verða frekari afleiðingar af síðan þessari í rauninni röngu stuðningsyfirlýsingu hæstv. forsætisráðherra?