heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Það er hið ágætasta mál sem við erum að ræða hérna. Mig langaði eingöngu að koma hingað upp til að halda til haga ákveðnum atriðum sem koma fram í umsögn réttindasamtakanna ÖBÍ og nokkrum öðrum atriðum sem mér finnst rétt að halda til haga. Í umsögn Öryrkjabandalagsins kemur fram m.a. að það sé tekið undir mikilvægi þess að það sé skilgreint í lögum hvað felst í fjarheilbrigðisþjónustu og mismunandi þáttum hennar og hafa samtökin bent á það á undanförnum árum að með tilkomu fjarheilbrigðisþjónustu aukist aðgengi fatlaðs fólks að heilbrigðisþjónustu. Það er auðvitað mjög vel. Samtökin segja m.a., með leyfi forseta:
„Fatlað fólk er mun líklegra til að fara í fleiri læknisheimsóknir en ófatlað fólk og jafnframt líklegra til að þurfa að nýta sér annars konar heilbrigðisþjónustu og því er nauðsynlegt að huga sérstaklega að því að fatlað fólk eigi raunverulega möguleika á því að nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu.“
Hvað er átt við með þessu? Það sem er átt við hér er það sem síðan kemur fram í umsögninni, með leyfi forseta:
„ÖBÍ bendir þó á að fatlað fólk getur átt erfitt með að nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu. Ástæðurnar eru margþættar, til að nefna, er 20% ólíklegra að fatlað fólk eigi tölvu, snjallsíma eða spjaldtölvu samanborið við ófatlað fólk. Fatlað fólk er oft undir fátæktarmörkum og hefur því ekki efni á að kaupa vörur sem eru sniðnar að háþróaðri tækni. Auk þess geta eldri einstaklingar, fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir og einhverfir, átt erfitt með nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu. Enn fremur þarf að huga sérstaklega að einstaklingum sem eru blindir, heyrnarlausir, heyrnarskertir eða daufblindir.“
Það er rétt að halda þessu til haga vegna þess að það vill svo til að þegar fundnar eru nýjar lausnir sem gagnast langflestum er gjarnan bent á að þær gagnist yfir 90% eða eitthvað slíkt og ég hugsa að lausnir þær sem hér er verið að leggja til og verið að festa í sessi gagnist örugglega á milli 90–100% fólks, en þó ekki 100%. Það sem var m.a. bent á í umræðum um þetta mál í hv. velferðarnefnd var að það vill vera þannig að það eru alltaf sömu 1–5 prósentin sem falla á milli skips og bryggju. Það má ætla að það eigi við í þessu máli sem öðrum. Við þurfum að hafa í huga líka með þessari tækniþróun og auknum tæknilausnum að búnaðurinn sem þarf til að nýta sér tæknilausnir er ekki alltaf öllum aðgengilegur, m.a. af fjárhagsástæðum. Það er auðvitað enn stærri umræða sem gengur út á það að tryggja að fatlað fólk sé ekki óhjákvæmilega undir fátæktarmörkum eins og virðist vera viðhorf margra að sé einhvern veginn eðlilegt. Það er það að sjálfsögðu ekki.
Annað sem mig langaði til að koma að í tengslum við þetta mál varðar þá lausn sem ætlast er til að sé notuð til auðkenningar við notkun og við veitingu þessarar fjarheilbrigðisþjónustu að mjög miklu marki, og er örugglega í langflestum tilvikum eðlilegt. Það eru rafræn skilríki. Nú hafa flestir Íslendingar og flestir einstaklingar sem búsettir eru á Íslandi aðgang að rafrænum skilríkjum. Það er hins vegar tvennt sem aukin útbreiðsla og aukin notkun rafrænna skilríkja felur í sér; ákveðin vandkvæði. Það er annars vegar aðgengi eins og hefur verið nefnt en það er líka tilhneiging til þess að nota rafræna auðkenningu og þá ágætlega tryggu auðkenningu sem felst í rafrænum skilríkjum, þó að hún sé að sjálfsögðu ekki fullkomin, að óþörfu. Ástæðan er sennilega sú hversu einföld þessi skilríki eru í notkun en hins vegar þurfum við aðeins að velta líka fyrir okkur hvort við séum að gera kröfur um of mikla auðkenningu. Hvers vegna skiptir það máli? Það skiptir máli vegna þess að það skiptir miklu máli að almenningur hafi tiltekna öryggisvitund, sé meðvitaður um það hvaða upplýsingar skiptir máli að geta látið frá sér og hverjar ekki og sé meðvitaður um það hvar öryggi upplýsinga skiptir máli og hvar ekki.
Nú er sú staða komin upp á Íslandi að þú notar rafræn skilríki til að panta pítsu og þú notar rafræn skilríki til að afhenda þínar allra viðkvæmustu persónuupplýsingar og fá aðgang að þeim. Þetta getur skert öryggisvitund einstaklinga og má alveg leiða hugann að því hvort við séum að ofnota þessa leið til auðkenningar, hvort í einhverjum tilvikum — og mig grunar að í einhverjum tilfellum þar sem fjarheilbrigðisþjónusta gæti verið veitt ætti að vera einfaldlega nóg að einstaklingur gefi upp nafn. Það er ekki víst að það sé alltaf þörf á því að tryggt sé hver er við hinn endann. Að sjálfsögðu þarf að tryggja það þar sem við á en það skiptir máli að halda þessu til haga til að við missum ekki sjónar á mikilvægi þess að tryggja trausta auðkenningu þar sem það á við. Það var ekki fleira.