154. löggjafarþing — 109. fundur,  8. maí 2024.

Náttúrufræðistofnun.

479. mál
[16:35]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar um þetta frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun, um þessa sameiningu stofnana. Ég ætla að fara yfir nokkur atriði, ekki endilega kerfisbundið, sem mér finnst ástæða til að nefna sérstaklega. Fyrir það fyrsta sameinast nefndin um það nefndarálit sem hér er til umræðu eftir mikla og góða vinnu í nefndinni. Hér erum við með gott dæmi um það að við hefðum til að mynda getað hlaupið til og klárað málið tiltölulega óunnið, segjum fyrir jól, og það var mikill asi á mörgum varðandi mál á þeim tíma, en við bárum gæfu til að setjast betur yfir það, fara yfir ýmis atriði og komast til botns í þeim og finna lausnir. Ég held að við höfum sannarlega gert ýmsar mjög góðar umbætur og voru þær kynntar hér áðan. Það má vera að fleira geti komið til síðar en alla vega er þetta viðleitni til að gera málið eins vel úr garði og hægt er og reyna eins og mögulegt er að tryggja að þetta verði farsæl sameining þessara stofnana. Það höfum við sannarlega lagt vinnu í að reyna að tryggja. Til að mynda, eins og kynnt var hér áðan, skiptir það gríðarlegu máli að fara vandlega yfir það hvernig við tryggjum réttindi starfsmanna sem færast til og inn í nýja stofnun, ekki bara í þessari sameiningu heldur líka við aðrar sameiningar stofnana sem kunna að verða og vorum við þar talsvert að vinna okkur í haginn fyrir önnur möguleg slík mál sem við þurfum að vinna. Hér erum við komin með skapalón til að gera það eins farsællega og við sjáum fyrir okkur á þessum tímapunkti fyrir starfsfólk stofnana, sem við viljum alls ekki missa frá þeim og það sem það býr yfir.

Mér persónulega finnst umhugsunarefni í málum sem við erum að sjá að undanförnu og varða sameiningar stofnana og fagstofnana, þessi áhersla ráðuneytisins sem á í hlut á að nánast verðfella sérfræðiþekkingu á fagsviðum sem stofnanirnar starfa á, jafnvel þó að þær séu að verða stærri. Ég get skilið að það skipti máli að margt fleira komi til en fagþekkingin, en það að leggja málin þannig upp að gera ekki aðrar kröfur til forstöðumanns en að hafa menntun og reynslu sem nýtist í starfi — það er nú óskaplega fátt sem við lærum eða reynum í lífinu sem ekki nýtist okkur síðan í næstu verkefnum og finnst mér þessi nálgun umhugsunarverð. Þess vegna er þetta mikilvæg bragarbót af okkar hálfu í nefndarálitinu, að það skipti vissulega miklu máli að hafa reynslu og þekkingu í stjórnun en að sömuleiðis sé æskilegt að forstöðumaður hafi þekkingu og menntun á fagsviðum stofnunar. Mér finnst það svo augljóst. Þetta á líka við um aðrar stofnanir og mögulega aðrar sameiningar og myndi ég vilja sjá þetta ráðuneyti sem önnur víkja af þeirri braut að ætla sér að fasa út sérfræðiþekkingu og fagþekkingu á starfssviði þeirra stofnana sem undir þau heyra. Mér finnst enginn bragur á því, en þetta er alla vega svona hjá okkur og verður það vonandi einnig á öðrum sviðum. Hvað sem að okkur er rétt í þinginu þá er þetta alla vega mín sýn.

Eitt vandasamasta verkefnið hjá okkur var að fara yfir og sjá hvernig við gætum tryggt öfluga starfsemi RAMÝ á Mývatni, sem er náttúrlega sérstaklega tryggð í lögum. Mörg þau verkefni sem þar er sinnt eru gríðarlega mikilvæg. Þar hefur verið öflugt starf og góður farvegur og einstakt svæði sem þar er unnið með, líka það mikla rannsóknastarf og samstarf sem hefur verið við Háskóla Íslands og Háskólann á Hólum. Fjöldi framhaldsnema er að vinna rannsóknarverkefni við Mývatn og er þetta virkilega mikilvæg starfsemi sem við þurfum að tryggja með öllum ráðum. Við vitum að sporin hræða í stofnanasameiningum og jafnvel hjá stærri stofnunum. Þegar kreppir að fjárhagslega eða eitthvað slíkt er svo auðvelt að skrúfa jafnvel niður í starfsemi út um landið, á starfsstöðvum eða í deildum sem þar eru. Það má ekki verða í þessu tilviki. Það er mikilvægt að það sé starfsemi að staðaldri á staðnum og að meginstarfsstöð RAMÝ sé við Mývatn. Af greinargerð með frumvarpinu mátti ætla að það væri engin eða takmörkuð aðstaða á svæðinu til að halda utan um slíkt, sem kom svolítið á óvart í ljósi þess að sama ráðuneyti stóð fyrir nokkrum árum fyrir því að byggja upp myndarlega aðstöðu sem margt fagfólk nýtti sér í sameiningu við Gíg. Ég las svona út úr þessu að verið væri að spila aðeins niður kosti við að reka öfluga vísindastarfsemi á svæðinu og nú þegar auglýst var eftir starfsmanni yfir þessi verkefni og einungis voru gerðar kröfur um háskólamenntun en ekki framhaldsmenntun eða slíkt, þó að þetta séu vissulega mjög stór og mikil og vandasöm verkefni sem krefjast mikillar þekkingar og reynslu til að geta sinnt. Ég held að það hafi vel tekist til hvað þetta varðar en þetta er ekki mikill metnaður af hálfu ráðuneytisins eða þeirra sem að standa að leggja þetta svona upp. Þetta þurfum við að fyrirbyggja og tryggja að það sé öflugt fagstarf með öflugu fólki á svæðinu og að forræði á verkefnum sé líka hjá því fólki og á staðnum. Ég varð að koma þessu að.

Varðandi náttúrustofurnar þá var líka óheppilegt að það skyldi ekki vera haft samráð við þær strax í upphafi og meira en raun bar vitni. Tek ég undir margar þær athugasemdir sem þær báru fram og ég tek líka undir þá gagnrýni að ráðuneytið hafi ekki enn þá lagt í þá vinnu sem búið var að samþykkja á þinginu að ætti að fara fram um framtíðarhlutverk þeirra, horfa til þess að meta þau verkefni sem þeim hafa verið færð og þær sinnt og hlutverk þeirra, og í framhaldi gefa enn frekar í varðandi starfsemina. Á síðustu árum hefur meira af vöktunarverkefnum og rannsóknarverkefnum farið til náttúrustofanna til að halda utan um og hefur það sannarlega reynst vel og komið vel út, enda eiga þessi verkefni í auknum mæli að vera vistuð þar sem vettvangur þeirra er. Það er í landshlutunum og þá hjá náttúrustofum og rannsóknastöðvum sem við eigum út um landið. Þar þarf að gera mun betur og líka þarf að fá ráðuneytið til að fylgja þessu eftir. Ég hvet ráðuneytið til að fylgja eftir þessari vinnu varðandi náttúrustofurnar þannig að við þurfum ekki að spyrja sérstaklega hvað þessu líði heldur að eitthvað gerist þar.

Við erum með nokkrar breytingar, m.a. á nafni laganna þar sem náttúrustofurnar eru eðlilega sérstaklega tilgreindar. Það undirstrikar að þær eigi að hafa mikilvægt og stórt hlutverk í þessu. Einnig tökum við fyrir það að forstjóri þessarar nýju stofnunar eigi að hafa eitthvert boðvald yfir náttúrustofunum heldur er það ráðherra sem leggur upp málin og þá væntanlega í samráði við sveitarfélögin og þá sem eru að reka náttúrustofurnar.

Að lokum er mikilvægt að halda því til haga að markmiðið með sameiningu þessara stofnana er að efla starfsemi þeirra, þ.e. að þær þrjár sameinaðar verði enn öflugri og geti framkvæmt enn betri og enn meiri rannsóknir, staðið sig enn betur í upplýsingagjöf og verið einfaldlega öflugri eining heldur en þær eru sín í hvoru lagi. Við verðum að halda því til haga og hvetja þá sem á málum halda til að fylgja eftir þeirri sýn og þeirri nálgun sem er kynnt hér og líka við framlagningu frumvarpsins, að það sé sannarlega tilgangurinn að efla þessa starfsemi, að efla rannsóknir og upplýsingagjöf til almennings sem þessi sameinaða stofnun getur veitt. Það er eitthvað sem við hljótum síðan að fylgja eftir og fylgjast með og taka þá viðkomandi stofnanir og ráðuneyti á orðinu með að það verði sannarlega raunin.