Náttúrufræðistofnun.
Virðulegi forseti. Hér er til umræðu nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun. Ég vil þakka hv. framsögumanni fyrir yfirferð yfir nefndarálitið og eins formanni umhverfis- og samgöngunefndar fyrir hans umfjöllun.
Mig langar örstutt að lýsa því að mér finnst jákvætt hvernig nefndin hefur brugðist við umsögnum. Með frumvarpinu er lagt til að Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, RAMÝ, verði hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands og að stofnunin muni framvegis bera heitið Náttúrufræðistofnun. Þarna er því verið að sameina stofnanir og verkefni sem snúa að grunnrannsóknum og utanumhaldi um grunnupplýsingar um náttúru Íslands.
Eins og segir í nefndarálitinu hefur RAMÝ staðið fyrir vöktun og rannsóknum við Mývatn í um fimm áratugi, allt frá því að lög um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, nr. 36/1974, tóku gildi. Sú lagasetning var hluti af samningi um lok deilna ríkis og landeigenda um fyrirhugaða Laxárvirkjun. Það er mjög mikilvægt, eins og kemur bæði fram í nefndarálitinu og frumvarpinu sjálfu, að sá samningur sé virtur. Mývatn og Laxársvæðið er einstakt svæði frá náttúrunnar hendi, bæði út frá líffræði og jarðfræði, líffræðilegri fjölbreytni og svo mörgu sem til mætti taka tengdu náttúrunni. Það hefur í gegnum árin nokkrum sinnum verið gerð atlaga að því að sameina RAMÝ öðrum stofnunum, m.a. hefur áður komið fram tillaga um að sameina Náttúrurannsóknastöðina Náttúrufræðistofnun en þá voru forsendurnar töluvert aðrar en núna.
Mér sýnist af umsögnum að dæma og umfjöllun og samtölum sem ég hef átt við fólk í Þingeyjarsýslum að sátt sé um að fara þessa leið og að menn trúi því og treysti að áfram verði öflugt starf hjá RAMÝ við Mývatn, því að auðvitað mun starfsemin fara þar fram áfram. Rannsóknaaðstaðan er komin í nýtt húsnæði, Gíg, sem gefur ýmis tækifæri til framtíðar.
Það sem ég vil fyrst og fremst leggja áherslu á hér er að með þessari sameiningu er verið að efla ákveðna umgjörð í kringum rannsóknirnar við Mývatn en þær munu eftir sem áður vera þar og vinnan fara fram þar.
Síðan vil ég koma inn á ábendingar sem náttúrustofurnar sendu inn og varða bæði reglugerðarheimild, sem gerð var athugasemd við útfærsluna á, og eins heiti frumvarpsins. Ég vil fagna því að nefndin leggur til breytingartillögu þannig að heiti frumvarpsins verði frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur, enda fjalla þessi lög um starfsemi náttúrustofa sem reknar eru af sveitarfélögunum hringinn í kringum landið og mikilvægt að það fari ekkert á milli mála að þessi lög fjalla líka um náttúrustofur, ekki eingöngu um Náttúrufræðistofnun. Þá er líka brugðist við þessum athugasemdum við reglugerðarheimildina og hún lagfærð.
Rétt að lokum vil ég leggja áherslu á að auðvitað er afskaplega mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að eiga góðar grunnupplýsingar um náttúruna sem við lifum með hér á landi, náttúruna sem við nýtum og verndum. Þar þurfum við stöðugt að halda áfram að bæta við upplýsingum og bæta aðferðir við að halda utan um upplýsingar. Þar sé ég eitt af stóru verkefnum þessarar nýju stofnunar, að búa til góða gagnagrunna fyrir þær upplýsingar sem við eigum nú þegar og munum afla á næstu árum og áratugum. Þannig getum við eflt okkur í sjálfbærri sambúð við íslenska náttúru.