brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar, úrelt lög, frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndinni barst ein umsögn um málið frá Seðlabanka Íslands, Lánamálum ríkisins.
Með frumvarpinu er lagt til að felldir verði brott nítján lagabálkar á sviði fjármálamarkaðar sem eru úreltir eða hafa lokið tilgangi sínum. Í umsögn Seðlabanka Íslands til nefndarinnar var minnt á að huga þyrfti sérstaklega að því hvort í lagabálkunum gæti falist ábyrgð ríkissjóðs á þeim skuldbindingum sem þar væri lýst eða vísað til. Þá kom fram að ekki yrði séð að þeir lagabálkar sem fella ætti brott fælu í sér slíka ábyrgð.
Meiri hlutinn er samþykkur frumvarpinu sem hefur það í för með sér að gera lagasafnið aðgengilegra. Jafnframt bendir meiri hlutinn á að brottfallin lög verða, eftir sem áður, tiltæk þeim sem kunna að þurfa að kynna sér þau.
Meiri hlutinn leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir þetta álit rita, ásamt þeim sem hér stendur, Teitur Björn Einarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson og Steinunn Þóra Árnadóttir.