154. löggjafarþing — 110. fundur,  13. maí 2024.

kynhlutleysi í íslensku máli.

[15:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil hér við þetta tækifæri beina fyrirspurn til hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra sem fer með málefni íslenskrar tungu á sama tíma og hæstv. ráðherra fer með málefni Ríkisútvarpsins. Vala Hafstað, leiðsögumaður og skáld, skrifaði pistil á vísi.is hinn 6. maí sl. sem hófst svona, með leyfi forseta:

„Við Íslendingar teljumst herlaus þjóð, en undanfarin ár hefur óprúttinn nýlenskuher gert aðför að tungumálinu okkar úr ýmsum áttum, staðráðinn í að innleiða hina kynlausu nýlensku í nafni jafnréttisbaráttu.“

Mig langar svona í ljósi þess að hæstv. ráðherra fer bæði með málefni Ríkisútvarpsins og íslenskunnar í víðum skilningi og ætti þar með að vera hinn helsti varðmaður íslenskunnar í íslensku stjórnkerfi að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu ráðherrans til þessarar þróunar. Er þetta kynhlutlausa mál sem Ríkisútvarpið virðist vera í algjörri forystu um að innleiða hér í umræðu á Íslandi eitthvað sem hefur verið rætt á vettvangi ráðuneytisins? Hafa verið lagðar einhverjar línur í þessum efnum eða eru þeir fjölmiðlar sem haga málnotkun sinni eins og hér blasir við, í raun með linnulausum árásum á málfræðigrunn íslenskunnar — er þetta gert með samþykki og í sátt við hæstv. ráðherra? Og svo ég spyrji nú opið: Hver er afstaða ráðherrans til þessarar þróunar?