kynhlutleysi í íslensku máli.
Virðulegur forseti. Ég vil bara fagna því að Alþingi væri að samþykkja þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun fyrir tungumálið okkar í síðustu viku og þar eru margar mjög brýnar aðgerðir sem við erum að fara að hrinda í framkvæmd. Þetta mál sem hv. þingmaður er að vísa til er fremur nýtilkomið og ég tel að það sé mikilvægt að við skoðum það, líka til þess að það séu þessi skýru skilaboð. Þrátt fyrir að tungumál okkar sé oft ákveðin áskorun fyrir okkur að nálgast og annað slíkt þá finnst mér skipta svo miklu máli að það séu skýr skilaboð og við séum ekki mögulega að flækja það meira en efni standa til. En eins og ég segi, (Forseti hringir.) þetta er frekar ný þróun en ég hallast að því að það sé brýnt að fara eftir settum reglum.