bankasala og traust á fjármálakerfinu.
Herra forseti. Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kom út árið 2018 er talað um traust á fjármálakerfinu. Þar segir m.a. þetta, með leyfi forseta:
„Ekki hefur tekist að endurheimta traust hérlendis með sama hætti og á fjármálamörkuðum annarra þróaðra ríkja. Stefnumörkun og næstu skref stjórnvalda þurfa því að haldast í hendur við uppbyggingu trausts og virkt samtal við almenning.“
Í hvítbókinni er einnig talað um að ein af þremur stoðum undir fjármálakerfið sé traust eignarhald fjármálafyrirtækja sem stuðlar að heilbrigðum og traustum rekstri með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Breytingar á eignarhaldi ríkisins í fjármálafyrirtækjum muni hafa töluverð áhrif á framtíð fjármálakerfisins. Könnun Gallups frá því í október 2018 sýndi að þá, áratug eftir fjármálaáfallið, báru einungis 16% mikið traust til fjármálakerfisins og 57% báru lítið traust til þess. Hlutverk ríkisins er að tryggja umgjörð sem stuðlar að verðskulduðu trausti og heilbrigðu eignarhaldi, segir í hvítbókinni.
Telur hæstv. ráðherra að í frumvarpinu um næstu sölu, sem nú er í þinglegri meðferð, felist að eigendur banka verði traustir, hafi umfangsmikla reynslu og þekkingu á starfsemi banka og fjárhagslega burði til að standa á bak við bankann þegar á móti blæs og að eigendur hafi langtímasjónarmið að leiðarljósi?
Framkvæmd síðustu sölu varð til þess að umboðsmaður Alþingis gerði athugasemd við að fjármálaráðherra hafi ekki gætt að hæfi sínu. Telur hæstv. ráðherra að greinin í frumvarpinu um að ráðherra þurfi ekki að gæta að hæfi sínu við fyrirhugaða sölu sé til þess fallin að vinna ferlinu traust?