bankasala og traust á fjármálakerfinu.
Virðulegur forseti. Eins og sjálfsagt flestir vita átti hv. þingmaður á sínum tíma sem ráðherra talsverðan þátt í því að setja það regluverk sem farið hefur verið eftir síðan. Ég veit ekki hvort það hefur einhver áhrif á afstöðu þingmannsins að það sé verið að fella það úr gildi. Ég held að það sé mikilvægt að það sé svona viðurkenning á því að þessi aðferð er auðvitað allt önnur. Bankinn er á markaði nú þegar. Það er búið að koma honum á markað. Þetta er áframhaldandi sala, sala sem verður ákveðin, öll viðmið og í raun og veru ferlið, hér á Alþingi og framkvæmdarvaldinu síðan falið að framkvæma innan þeirra ramma sem þar eru. Þannig að eins og ég sagði í mínu fyrra svari við fyrirspurn þá held ég að við munum þar sjá fyrir okkur betra gagnsæi og tryggingu fyrir því að fólk geti haft trú og traust á (Forseti hringir.) þeim gjörningi sem þá mun verða, að því gefnu að Alþingi samþykki það frumvarp sem liggur hérna fyrir þinginu.