154. löggjafarþing — 110. fundur,  13. maí 2024.

brottvísun þolenda mansals úr landi.

[15:27]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Síðustu daga hafa okkur borist fréttir af þremur konum, þeim Blessing, Mary og Esther; konum sem flúðu mansal í Nígeríu og leituðu ásjár íslenskra stjórnvalda fyrir mörgum árum. Þær komu til Íslands fyrir fjórum til sex árum, komust hingað í skjól frá hrottalegu ofbeldi og síðan þá hafa íslensk stjórnvöld leitað allra leiða til að skjóta ekki skjólshúsi yfir þær, leitað allra leiða til að losna við þær úr landi þannig að þær geti farið aftur í þær aðstæður sem þær eru að flýja. Þessar konur eru hluti af hópi flóttafólks sem fyrir ári síðan varð fyrir hræðilegri breytingu á útlendingalögum sem var samþykkt hér í þingsal sem snerist um að svipta þær allri þjónustu, að varpa þeim út á götuna úr úrræðum Útlendingastofnunar til þess að þær myndu pínast til að fara úr landi sjálfviljugar, eins og það heitir á embættismannaíslenskunni. Þær völdu þann kostinn ekki, enda er ekki hægt að ætlast til þess að þolendur ofbeldis fari sjálfviljugir inn í ofbeldið aftur. En nú virðast stjórnvöld hafa fundið einhverja leið til að brottvísa þeim með valdi, sem ekki var hægt fyrir ári. Þær voru hnepptar í varðhald. Þær voru frelsissviptar í fangelsinu á Hólmsheiði núna um helgina fyrir þann glæp að vera þolendur mansals. Hugsið ykkur grimmdina. Hugsið ykkur ómennskuna í framferði stjórnvalda. Þetta eru sömu stjórnvöld og segjast hafa það að stefnu að veita þolendum mansals aðstoð, stuðning og vernd. Hvernig er það stuðningur og aðstoð við þolendur mansals að kippa undan þeim fótunum? Hvernig er það stuðningur við þolendur mansals að brottvísa þeim í nákvæmlega sömu aðstæður og þeir eru að flýja? Hvernig réttlætir ráðherra brottvísun þolenda mansals?