brottvísun þolenda mansals úr landi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hef sagt það áður og mun segja það aftur hér að ég tel ekki rétt af mér sem ráðherra og get ekki tjáð mig um einstök mál sem hlotið hafa meðferð á tveimur stjórnsýslustigum hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Þetta eru flókin mál, þau eru persónuleg og þegar einstaklingar koma hingað til lands og sækjast eftir og óska verndar hér á landi þá ber okkur að fara ofan í kjölinn á þeim umsóknum og þeim forsendum sem þar eru lagðar fram. Hjá Útlendingastofnun sem og kærunefnd starfar hópur af fagfólki með sérþekkingu á þessum málaflokki sem ég ber traust til. Ég hef því hvorki heimild né forsendur til að taka fram fyrir hendurnar á þeim varðandi meðferð einstakra mála eða breyta niðurstöðu þeirra. Hitt er aftur á móti annað mál að ríkisstjórnin er búin að segja það í heildarstefnu sem við kynntum í febrúar að við ætlum að auka brottflutning frá landinu, auka brottflutning þeirra sem ekki hafa fengið vernd hér á landi og ber þar af leiðandi að yfirgefa landið. Það þýðir að fólk mun þurfa að fara héðan sem jafnvel er búið að vera hér í nokkuð langan tíma og hefur verið lengi í kerfinu. Ég tek undir með hv. þingmanni að það getur verið óbærilega sárt.