154. löggjafarþing — 110. fundur,  13. maí 2024.

brottvísun þolenda mansals úr landi.

[15:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Forseti. Ríkisstjórnin ætlar að auka brottflutning umsækjenda um alþjóðlega vernd og hún ætlar að byrja á þolendum mansals. Hún ætlar að byrja á að henda þeim í fangelsi uppi á Hólmsheiði og sparka þeim úr landi. Hæstv. ráðherra getur ekki tjáð sig um einstök mál en ríkisstjórnin breytti lögum bara fyrir þessi einstöku mál hér fyrir ári. Þjónustusviptingin snerti við örlitlum hópi þar sem voru kannski þrjár tegundir af umsóknum. Mansalsþolendur frá Nígeríu voru einfaldlega ein af þeim tegundum umsókna sem ráðherra og aðrir stjórnarliðar kusu að vísa þessa leið. Lögum var breytt til að taka á einstökum málum þannig að ég bið ráðherra að tjá sig um þessi einstöku mál. Og ég spyr ráðherra vegna þess að fyrir ári þurfti að breyta lögum svo hægt væri að svelta þessar konur til hlýðni með því að þjónustusvipta þær. Nú er greinilega hægt að beita þeir valdi til að flytja úr landi, eitthvað hefur breyst, en mig langar að spyrja ráðherra: Hvað breyttist í millitíðinni? Nígería er t.d. (Forseti hringir.) ekki flokkuð sem öruggt upprunaríki á vef Útlendingastofnunar. (Forseti hringir.) Ætla íslensk stjórnvöld að brottvísa þolendum mansals til ríkis (Forseti hringir.) sem ekki er talið öruggt af íslenskum stjórnvöldum? Hvað er ráðherra að spá?