154. löggjafarþing — 111. fundur, 14. maí 2024.
breyting á starfsáætlun.
Forseti hefur ákveðið, að höfðu samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka, að gera þær breytingar á starfsáætlun Alþingis að miðvikudagurinn 15. maí verði nefndadagur en sá dagur átti að vera þingfundadagur samkvæmt starfsáætlun.