framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið öðru sinni. Ég vil þá bara ítreka það sem ég fór yfir í minni framsögu, varðandi það fyrsta sem hv. þingmaður kom inn á, að það er sannarlega heimild í sveitarstjórnarlögum. Í 131. gr. er ákvæði sem ætlað er að komi til framkvæmda verði neyðarástand í sveitarfélagi en ég tók líka fram: Það á ekki við í tilfelli Grindavíkurbæjar.Við vitum að þetta eru fordæmalausar aðstæður en það er ekki verið að beita því ákvæði, þótt heimild sé fyrir því, heldur erum við að fara þessa leið til að tryggja að þetta snúist alltaf þegar upp er staðið um ákvörðun sveitarfélagsins
Vegna þess sem hv. þingmaður bendir á varðandi umsögn sambandsins, sem átti því miður ekki kost á að koma til fundar við nefndina þegar eftir því var óskað, kom það þó fram í þeirra umsögn að þau taki einmitt undir og hafi um það sömu upplýsingar og við, og kom það fram hér í ræðu hæstv. ráðherra, að þetta var allt saman unnið í góðu samræmi og samráði við Grindavíkurbæ. Þannig að ég hef ekki áhyggjur af þeim hlut.
Varðandi það sem hv. þingmaður bendir á og kemur fram í umsögn sambandsins varðandi aðkomu jöfnunarsjóðsins þá minni ég líka á það sem hæstv. ráðherra fór yfir í sinni framsögu, að alveg eins og við erum búin að skrifa inn tillögu að þessu samráði við þingið, þ.e. að okkur sé skilað skýrslu og hún á sama tíma rædd í umhverfis- og samgöngunefnd, þá minnti hæstv. ráðherra á það mikilvægi að halda fjárstjórnarvaldinu, sem er jú hér, sem er okkar, rétt eins og við höfum verið að taka ákvarðanir í tengslum við þá stöðu sem uppi er, að fjárlaganefnd væri líka upplýst í því máli. Það gerum við ekki að tillögu okkar hér enda erum við að setja þetta í mjög skýran farveg með fordæmi, eins og ég fór yfir í framsögunni varðandi Seðlabankann, þ.e. að þegar kemur að útgjöldum varðandi þetta ástand þá sé þingið reglulega upplýst og taki virkan þátt í þeim upplýsingum og fái þær upplýsingar sem framkvæmdanefndin býr yfir og þær komi til nefndarinnar í formi skýrslu. Hvað þennan þátt varðar veit ég að við höldum áfram (Forseti hringir.) að vinna saman að því að taka utan um þetta vandlega.