154. löggjafarþing — 111. fundur,  14. maí 2024.

framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.

1095. mál
[14:40]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið öðru sinni. Þeir hv. þingmenn sem sæti eiga í umhverfis- og samgöngunefnd hafa aldeilis ekki farið varhluta af þeim umræðum og skulum við segja þeim kröfum eða þeim hugmyndum sem uppi hafa verið varðandi frekari verkefni sem varða, eins og hv. þingmaður kom inn á, einstök fyrirtæki eða stöðu þeirra í samhengi þeirrar fordæmalausu stöðu sem uppi er í Grindavík. Það ræddum við ekki sérstaklega í nefndinni í samhengi þessa máls enda var okkar aðalfókus á að einbeita okkur að því sem laut að framkvæmdanefndinni sem er í rauninni það sem við erum að koma á fót með þessu frumvarpi.

Hafandi sagt það þá geri ég mér alveg grein fyrir því að mörg af þeim málum sem við höfum verið að afgreiða hér í þinginu sem varða aðstoð og/eða stuðning við þessar aðstæður í Grindavík eru klárlega mál sem hljóta að þurfa að koma til okkar kasta áður en þessu löggjafarþingi lýkur. Hver staðan er á þeim nákvæmlega, þ.e. vinnslu við þau mál, ég bara er ekki alveg meðvitaður um það. Það kom ekki til umræðu í nefndinni í samhengi við þetta enda héldum við fókusnum algerlega á vinnunni varðandi framkvæmdanefndina og reyndum að skafa af skafanka í frumvarpinu þannig að við gætum sátt við unað.

Hafandi sagt það þá vil ég bara nota tækifærið, virðulegi forseti, og þakka nefndinni fyrir hraða og snarpa vinnu við það að koma þessu verkefni áfram og ítreka það sem ég sagði áðan í minni framsögu, að þau sem komu fyrir nefndina lögðu áherslu á mikilvægi þessa máls og að frumvarpið fengi skjótan framgang.

Ég vil þakka hv. nefndarmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd kærlega fyrir góða samvinnu í því að koma þessu máli á koppinn.